Viðskiptaráð Íslands

Tanya Zharov nýr stjórnarformaður HR

Tanya Zharov var í dag kjörin stjórnarformaður Háskólans í Reykjavík og Svafa Grönfeldt varaformaður á aðalfundi skólans. Á fundinum ávarpaði formaður Viðskiptaráðs gesti og dró fram mikilvægi tengsla háskólans við atvinnulífið. Hann lagði áherslu á að HR væri mótandi afl í samfélaginu og hvatti stjórnendur, fræðafólk og starfsfólk til að taka þátt í samfélagsumræðunni, bæði um framtíðina almennt og einnig um gæði og árangur á fyrri skólastigum.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fráfarandi stjórnarformaður, Tanya Zharov, nýr stjórnarformaður, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR

Aðalfundur Háskólans í Reykjavík (HR) fór fram í dag, 29. apríl 2026. Á fundinum urðu talsverðar mannabreytingar í stjórn háskólans en Tanya Zharov hefur nú tekið við sem stjórnarformaður HR af Guðbjörgu Eddu Eggertsdóttur. Þá kom Svafa Grönfeldt ný inn í stjórnina og tekur við hlutverki varaformanns.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, ávarpaði fundinn og fór yfir hlutverk skólans í íslensku atvinnulífi. Hann benti á að lifandi tenging við atvinnulífið væri helsta sérstaða skólans og að náið samband viðskiptalífs og akademíu gerði HR að mikilvægum vettvangi fyrir nýsköpun. Hann sagði háskólann eiga að vera mótandi hreyfiafl í samfélaginu frekar en aðeins útskriftarverksmiðju og hvatti skólann til að halda áfram að taka pláss í þjóðfélagsumræðunni um framtíð samfélagsins.

Andri viðraði jafnframt áhyggjur af gæðum grunn- og framhaldsskólastigsins, sem hann taldi ekki skila nemendum nægilega vel undirbúnum undir háskólanám. Hann hvatti stjórnendur, fræðafólk og starfsfólk HR til að beita sér með beinum hætti í opinberri umræðu og krefjast m.a. aukinna gæða á fyrri skólastigum. Þá kom Andri inn á mikilvægi heilbrigðrar samkeppni á milli Háskóla Íslands og HR sem hann sagði gera báða skóla betri. Hann lagði áherslu á að HR ætti ekki að sætta sig við að vera litli bróðir í íslenska háskólakerfinu, heldur nýta námsframboð sitt til sóknar. „Öflugur HR er ekki einkamál skólans heldur þjóðhagslegt hagsmunamál,“ sagði Andri.

Eignaraðild Viðskiptaráðs að háskólanum á sér langa sögu, en ráðið stofnaði skólann árið 1998 og bar hann þá nafnið Viðskiptaháskólinn í Reykjavík. Skólinn tók upp sitt núverandi nafn og stækkaði verulega við sameiningu við Tækniháskóla Íslands árið 2005. Menntasjóður Viðskiptaráðs er stærsti eigandi skólans í dag og fer með 64 prósenta hlut. Samtök iðnaðarins eiga 24 prósent en Samtök atvinnulífsins tólf prósent. Háskólinn er rekinn alfarið án hagnaðarsjónarmiða og eru arðgreiðslur til eigenda ekki heimilar.

Guðbjörgu Eddu eru færðar sérstakar þakkir fyrir framlag hennar til skólans á starfstíma sínum sem stjórnarformaður. Með nýrri forystu í stjórn og áframhaldandi stuðningi eigenda er horft til þess að HR haldi áfram að styrkja hlutverk sitt sem öflugur háskóli og virkt afl í þróun íslensks samfélags og atvinnulífs.

Ný stjórn HR

  • Tanya Zharov, formaður – tilnefnd sameiginlega af Viðskiptaráði, SI og SA
  • Svafa Grönfeldt, varaformaður – tilnefnd af Viðskiptaráði
  • Björn Brynjúlfur Björnsson – tilnefndur af Viðskiptaráði
  • Halldór Benjamín Þorbergsson – tilnefndur af SA
  • Sigurður Hannesson – tilnefndur af SI

Nýtt háskólaráð HR

  • Tanya Zharov – formaður stjórnar HR
  • Andri Þór Guðmundsson – tilnefndur af Viðskiptaráði
  • Anna Hrefna Ingimundardóttir – tilnefnd af SA
  • Borghildur Erlingsdóttir – tilnefnd af ráðuneyti
  • Brynja Baldursdóttir – tilnefnd af Viðskiptaráði
  • Guðmundur Fertram Sigurjónsson – tilnefndur af Viðskiptaráði
  • Hjálmar Gíslason – tilnefndur af Viðskiptaráði
  • Jón Ólafur Halldórsson – tilnefndur af SA
  • Valgerður Hrund Skúladóttir – tilnefnd af SI
  • Þorsteinn Víglundsson – tilnefndur af SI

Tengt efni

Sigríður Vala og Steinn Logi ný í skólanefnd Verzló

Sigríður Vala Halldórsdóttir og Steinn Logi Björnsson voru kjörin í skólanefnd Verzlunarskóla Íslands á aðalfundi skólans sem fram fór í gær. Þá var …
22. maí 2026

Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2026-2028 voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs, sem fram fór í dag. Andri Þór Guðmundsson var …
10. febrúar 2026

Menntun er fjársjóður - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 21. júní útskrifuðust 697 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og …
24. júní 2025

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. september. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, tók …
13. september 2024

Stöðnun á grunnskólastigi - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 22. júní útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Björn Brynjúlfur Björnsson, …
24. júní 2024

Andri nýr formaður Viðskiptaráðs – Ný stjórn kjörin

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fór fram í dag. Þar var kunngerð niðurstaða úr kosningu í embætti formanns og í stjórn.
7. febrúar 2024