„Framtíð íslensks samfélags ræðst að stórum hluta af því hvort okkur tekst að byggja upp menntakerfi sem sameinar metnað, gagnsæi og skýra mælikvarða á árangur.“
Þetta var á meðal þess sem að Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands, sagði í ávarpi við útskriftarathöfn Háskólans í Reykjavík laugardaginn 20. júní 2026.

Útskriftarathöfn Háskólans í Reykjavík fór fram í Hörpu laugardaginn 20. júní sl. þar sem skólinn útskrifaði 720 nemendur. Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands, hélt ávarp og veitti viðurkenningar á útskriftarathöfninni. „Háskólinn í Reykjavík hefur á tiltölulega skömmum tíma skapað sér sess sem einn af burðarstólpum íslensks háskólasamfélags,“ sagði Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands, í ræðu sinni í útskriftarathöfn HR. Hann benti á að þegar skólinn var stofnaður árið 1998 hafi ríkt stöðnun á háskólastigi hér á landi, en á rúmum aldarfjórðungi hafi HR vaxið og skapað sér sérstöðu sem öflugur háskóli atvinnulífsins.
„Árangur HR er lifandi dæmi um mikilvægi þess að einstaklingsframtakið og nýjar hugmyndir fái svigrúm til að vaxa og dafna. Þegar valkostum fjölgar skapast tækifæri til nýsköpunar, framfara og metnaðar. Samkeppni kallar fram metnað og metnaður skilar árangri,“ sagði Andri.

Áskoranir á fyrri skólastigum
Andri vék einnig máli sínu að þeim áskorunum sem blasa við á fyrri skólastigum menntakerfisins. Hann sagði framtíð íslensks samfélags réðist að stórum hluta af því hvort okkur tækist að byggja upp menntakerfi sem sameinar metnað, gagnsæi og skýra mælikvarða á árangur.
„Framtíð íslensks samfélags ræðst að stórum hluta af því hvort okkur tekst að byggja upp menntakerfi sem sameinar metnað, gagnsæi og skýra mælikvarða á árangur. Við þurfum að mæla það sem skiptir máli, nýta gögn til umbóta og tryggja að allir nemendur séu metnir á sambærilegum forsendum,“ sagði Andri. Hann nýtti jafnframt tækifærið til að hrósa Ragnhildi Helgadóttur, rektor Háskólans í Reykjavík og starfsfólki skólans fyrir þeirra framlag til árangurs skólans og hvatti viðstadda til að klappa fyrir þeim.

Þeir sem halla sér fram munu skara fram úr
Að lokum beindi Andri Þór orðum sínum beint til útskriftarnemanna:
„Þótt þessi dagur marki endalok ákveðins kafla er hann ekki síður upphaf nýs kafla. Þekkingin sem þið hafið aflað ykkur mun nýtast ykkur vel á komandi árum, en ekki síður hæfnin til að læra, spyrja spurninga og takast á við nýjar áskoranir. Ykkar verkefni er að skapa framtíðina. Verið hugrökk og áræðin, eltið draumana og framtíðin er ykkar. Til að skara fram úr og ná árangri í heimi sem gervigreindin mótar á næstu árum og áratugum þá þurfið þið áræðni, hugrekki og tilfinningagreind. Þeir sem halla sér aftur dragast aftur úr en þeir sem halla sér fram munu skara fram úr.“
Viðurkenningu Viðskiptaráðs hljóta þeir nemendur sem ná hæstu einkunn frá öllum deildum skólans. Að þessu sinni fengu verðlaunahafar afhenta bókina Hagfræði í hnotskurn, en hún er klassískt verk um grundvallaratriði hagfræðinnar sem kom fyrst út árið 1946. Í upphafsorðum bókarinnar er lögð áhersla á mikilvægi þess að horfa ekki aðeins til skammtímaáhrifa einstakra ákvarðana, heldur einnig til langtímaáhrifa þeirra fyrir samfélagið allt.
Eftirtaldir sex nemendur hlutu viðurkenningu í ár:
Viðskiptaráð Íslands óskar útskriftarnemum, aðstandendum þeirra og starfsfólki Háskólans í Reykjavík innilega til hamingju með daginn.
