Viðskiptaráð Íslands

Sigríður Vala og Steinn Logi ný í skólanefnd Verzló

Sigríður Vala Halldórsdóttir og Steinn Logi Björnsson voru kjörin í skólanefnd Verzlunarskóla Íslands á aðalfundi skólans sem fram fór í gær. Þá var Helga Árnadóttir kjörin nýr formaður fulltrúaráðs skólans. Á fundinum ávarpaði Andri Þór Guðmundsson, fráfarandi skólanefndarmaður og formaður Viðskiptaráðs, gesti og fjallaði um nýja skýrslu menntamálaráðherra sem sýnir fram á misræmi í einkunnagjöf á milli grunnskóla á Íslandi. Hann hvatti trúnaðarmenn, stjórnendur og starfsfólk Verzlunarskólans til að bregðast við ástandinu til að tryggja umsækjendum um skólavist jafnræði og bættan árangur í skólakerfinu í heild.

Vinstri: Sigríður Margrét Oddsdóttir og Andri Þór Guðmundsson, fráfarandi skólanefndarmenn, ásamt Þorkeli H. Diego, aðstoðarskólastjóra. Miðja: Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri, ásamt Ingunni Agnesi Kro, fráfarandi formanni fulltrúaráðs. Hægri: Steinn Logi Björnsson, nýr skólanefndarmaður, Helga Árnadóttir, nýr formaður fulltrúaráðs, og Sigríður Vala Halldórsdóttir, nýr skólanefndarmaður.

Aðalfundur fulltrúaráðs Verzlunarskóla Íslands fór fram fimmtudaginn 21. maí 2026 í húsakynnum skólans. Á fundinum tóku tveir nýir aðilar sæti í skólanefnd og fjórir nýir aðilar sæti í fulltrúaráði. Þá ávarpaði Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs og fráfarandi skólanefndarmaður, gesti fundarins.

Endurnýjun í skólanefnd og fulltrúaráði

Kosið var um tvö ný sæti í skólanefnd á fundinum. Þau Sigríður Vala Halldórsdóttir og Steinn Logi Björnsson koma ný inn í nefndina í stað Andra Þórs Guðmundssonar og Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, sem bæði létu af störfum.

Fjórar breytingar urðu á skipan fulltrúaráðs skólans. Björn Einarsson tekur sæti fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins (SA) í stað Steins Loga Björnssonar og Heiðrún Jónsdóttir kemur inn tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) í stað Hannesar Frímanns Hrólfssonar. Þá taka þau Guðný Helga Herbertsdóttir og Jón Guðni Ómarsson sæti fyrir Viðskiptaráð Íslands (VÍ) og koma í stað Ingunnar Agnesar Kro og Ingibjargar Grétu Gísladóttur.

Skólanefnd Verzlunarskólans skipa því nú:

  • Bryndís Hrafnkelsdóttir, formaður
  • Benedikt Gíslason
  • Hannes Frímann Hrólfsson
  • Sigríður Vala Halldórsdóttir
  • Steinn Logi Björnsson

Fulltrúaráð Verzlunarskólans er nú þannig skipað:

  • Björn Brynjúlfur Björnsson, tilnefndur af VÍ
  • Björn Einarsson, tilnefndur af SA
  • Guðný Helga Herbertsdóttir, tilnefnd af VÍ
  • Heiðrún Jónsdóttir, tilnefnd af SFF
  • Helga Árnadóttir, tilnefnd af SAF
  • Jóhannes Stefánsson, tilnefndur af SA
  • Jón Guðni Ómarsson, tilnefndur af VÍ
  • Margrét Sanders, tilnefnd af SVÞ
  • Sigríður Margrét Oddsdóttir, tilnefnd af SA

Áskoranir vegna einkunnagjafar

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs og fráfarandi skólanefndarmaður, flutti ávarp á fundinum. Þar fjallaði hann um mikilvægi þess að skólinn sé hreyfiafl í íslensku samfélagi. Hann minnti á að Verzlunarskólinn hefði djúpar rætur sem verslunar- og viðskiptaskóli og að sterk tengsl við atvinnulífið væru lykill að þeim góða árangri sem skólinn og nemendur hans hafa náð til þessa. Þessari sterku stöðu fylgdi hins vegar sú ábyrgð að skólinn mætti ekki að fylgja ríkjandi straumum, heldur þyrfti hann að stíga fram, taka virkan þátt og leiða umræðu um menntamál.

Þá lagði Andri sérstaka áherslu á misræmi í einkunnagjöf á milli grunnskóla landsins. Hann benti á að ný skýrsla menntamálaráðherra hefði staðfest að ósamræmi væri í einkunnum á milli skóla, sem hefði bein áhrif á inntöku í framhaldsskóla og væri andstætt sjónarmiðum um jafnræði meðal umsækjenda um skólavist. Hann hvatti trúnaðarmenn, stjórnendur og starfsfólk Verzlunarskólans til að bregðast við ástandinu til að tryggja umsækjendum um skólavist jafnræði og bættan árangur í skólakerfinu í heild.

Þakkir til fráfarandi trúnaðarmanna

Að fundi loknum var þeim einstaklingum sem nú láta af trúnaðarstörfum færðar sérstakar þakkir fyrir framlag sitt til skólans. Ingunni Agnesi Kro var þakkað fyrir sín störf, en hún lætur nú af embætti formanns fulltrúaráðs, og Ingibjörgu Grétu Gísladóttur var sömuleiðis þökkuð seta í ráðinu. Þá var Andra Þór Guðmundssyni þakkað fyrir sín störf, en hann hefur átt sæti í skólanefnd undanfarin 12 ár. Einnig voru Sigríði Margréti Oddsdóttur færðar þakkir fyrir 15 ára setu í skólanefnd, en hún mun áfram starfa fyrir skólann sem meðlimur í fulltrúaráði.

Tengt efni

Fjármálaráðherra ekki svarað erindi Viðskiptaráðs ári síðar

Viðskiptaráð sendi fyrir einu ári bréf til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi tvísköttun á hlutdeildarskírteinum fyrirtækja, sem dregur úr …
13. maí 2026

Tölustafaeinkunnir, samræmd próf og fækkun borgarfulltrúa meðal vinsælustu mála

Hógvær hækkun gjalda, aukin áhersla á grunnfög, tryggt aðgengi að bílastæðum og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mests …
11. maí 2026

Björn Brynjúlfur gestur í Þjóðmálum

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs var gestur í hlaðvarpinu Þjóðmálum 1. maí sl.
4. maí 2026

Upptaka af Kosningafundi Viðskiptaráðs í Iðnó

Kosningafundur Viðskiptaráðs fór fram í Iðnó 29. apríl 2026 með oddvitum flokkana í Reykjavík. Pallborðsumræðum var skipt upp í tvo hluta. Fyrst voru …
30. apríl 2026

Kosningapróf Viðskiptaráðs: hvar stendur þú?

Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði í Reykjavíkurborg þeir standa næst í lykilmálum og verkefnum …
30. apríl 2026

Tanya Zharov nýr stjórnarformaður HR

Tanya Zharov var í dag kjörin stjórnarformaður Háskólans í Reykjavík og Svafa Grönfeldt varaformaður á aðalfundi skólans. Á fundinum ávarpaði formaður …
29. apríl 2026