Viðskiptaráð Íslands

Menntun er fjársjóður - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 21. júní útskrifuðust 697 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og stjórnarmaður í Viðskiptaráði, hátíðarræðu. Þar fjallaði hún um mikilvægi menntunar sem hornsteinn framfara og bættra lífskjara hér á landi. 

Laugardaginn 21. júní útskrifuðust 697 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík og fór útskriftarathöfnin fram í Eldborg í Hörpu. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, hátíðarræðu. Þar fjallaði hún um áherslu Viðskiptaráðs á mikilvægi menntunar og að menntun sé hornsteinn framfara og bættra lífkjara hér á landi.

Í ræðu sinni hvatti Ásta útskriftarnemendur til dáða og líkti menntun við fjársjóð sem enginn gæti tekið frá þeim. Hún hvatti nemendur til að fara eigin leiðir og hafa hugrekki til að prófa að gera það sem þá raunverulega langar til að gera að lokinni útskrift.

„Með því að hafa trú á sjálfum sér og þor til að grípa þau tækifæri sem bíða ykkar þarna úti munið þið ná enn meiri árangri en þið hefðuð sjálf trúað í upphafi,“ sagði Ásta í ræðu sinni.

Ásta veitti jafnframt viðurkenningar fyrir hönd Viðskiptaráðs, en hefð er fyrir því að ráðið veiti þeim nemanda sem hæstu einkunn fær frá hverri deild HR viðurkenningu við útskrift. Viðurkenningin að þessu sinni voru ritin Hagfræði í hnotskurn eftir Henry Hazlitt og Lifað með öldinni eftir Jóhannes Nordal.

Eftirtaldir hlutu viðurkenningu:

  • Úr íþróttafræðideild - Diljá Ósk Snjólfsdóttir
  • Úr íþróttafræðideild - Heiðrún Huld Gestsdóttir
  • Úr lagadeild - Helga Malen Sigurjónsdóttir
  • Úr sálfræðideild - Birta María Aðalsteinsdóttir
  • Úr sálfræðideild - Sóley Breiðfjörð Jónsdóttir
  • Úr sálfræðideild - Telma Fanney Magnúsdóttir
  • Úr tölvunarfræðideild - Dagur Þórisson
  • Úr verkfræðideild - Jóhann Jörgen Kjerúlf
  • Úr viðskipta- og hagfræðideild - Hanna Regína Einarsdóttir

Hátíðarræðu Ástu má nálgast hér.

Sjá nánari umfjöllun á vef Háskólans í Reykjavík.

Ásta S. Fjeldsted ásamt Ragnhildi Helgadóttur, rektor HR, og verðlaunahöfum (ljósmyndir: HR / Kristinn Magnússon)

Tengt efni

Viðskiptaráð verðlaunar Verzlunarskólastúdenta

Tinna Björg Jóhannsdóttir og Ásta Dís Ingimarsdóttir hlutu viðurkenningu Viðskiptaráðs fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi.
1. júní 2026

Tanya Zharov nýr stjórnarformaður HR

Tanya Zharov var í dag kjörin stjórnarformaður Háskólans í Reykjavík og Svafa Grönfeldt varaformaður á aðalfundi skólans. Á fundinum ávarpaði formaður …
29. apríl 2026

Stöðnun á grunnskólastigi - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 22. júní útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Björn Brynjúlfur Björnsson, …
24. júní 2024

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema við HR

Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað framúrskarandi nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag, þann 1. febrúar sl., …
7. febrúar 2020

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað nema sem útskrifast með láði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag, þann 17. júní, …
19. júní 2017

Viðurkenningar Viðskiptaráðs veittar við brautskráningu frá HR

204 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Hörpu laugardaginn 30. janúar. Í tilefni brautskráningarinnar hélt …
2. febrúar 2016