Viðskiptaráð styður fyrirhugaðar breytingar á ársreikningalögum sem miða að því að draga úr reglubyrði smærri fyrirtækja. Ráðið telur þó að ganga eigi lengra og nýta til fulls það svigrúm sem EES-reglur veita til einföldunar, bæði við ákvörðun stærðarmarka fyrirtækja og endurskoðunarskyldu.

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um ársreikninga. Með frumvarpinu eru meðal annars stærðarmörk félaga hækkuð, endurskoðunarmörkum og skilafrestum breytt og tilskipun ESB um upplýsingagjöf tiltekinna stórra fyrirtækja innleidd.
Ráðið styður meginmarkmið frumvarpsins en telur að ganga megi lengra við að draga úr reglubyrði og færa starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja nær því sem tíðkast annars staðar á EES.
Bilið minnkað en því ekki lokað
Í umsögninni er lagt til að svigrúm ársreikningatilskipunarinnar verði nýtt til fulls við ákvörðun stærðarmarka lítilla félaga og örfélaga. Frumvarpið hækkar mörkin en nýtir ekki að fullu þau hámarksviðmið sem tilskipunin heimilar.
Til samanburðar hefur Danmörk nýtt svigrúm tilskipunarinnar mun frekar við ákvörðun stærðarmarka fyrirtækja. Að mati Viðskiptaráðs felur frumvarpið því í sér að bilið milli íslenskra fyrirtækja og fyrirtækja í nágrannaríkjum sé minnkað, en því sé ekki lokað.
Sérstaklega er lagt til að mörk örfélaga verði hækkuð og að viðmið um meðalfjölda ársverka fari úr þremur í tíu. Ráðið telur að möguleiki örfélaga á einfölduðum skilum ársreiknings, svokölluðum „hnappi“, eigi ekki að standa í vegi fyrir því. Hægt sé að gera sérstakar og þrengri kröfur um hvaða örfélög geti nýtt þá einföldun, óháð almennri stærðarflokkun þeirra.
Viðskiptaráð gerir jafnframt athugasemd við umfang endurskoðunarskyldu samkvæmt frumvarpinu. Meðal annars er lagt til að félög með heildareignir yfir 1,5 ma.kr. verði endurskoðunarskyld óháð veltu og starfsmannafjölda. Ekki kemur fram í áhrifamati frumvarpsins hversu mörg félög muni falla undir hið nýja eignaviðmið.
Tilskipunin gerir ekki kröfu um endurskoðun ársreikninga lítilla félaga. Að mati ráðsins er því hætta á að hið sérstaka eignaviðmið leiði til aukinnar endurskoðunarskyldu meðal lítilla og meðalstórra félaga, þvert á markmið frumvarpsins um einföldun regluverks.
Ráðið bendir jafnframt á að íslensk lög skilgreini mun fleiri félög sem einingar tengdar almannahagsmunum en tíðkast annars staðar í Evrópu. Af þeirri flokkun leiða auknar kröfur og kostnaður fyrir fyrirtæki og telur ráðið tilefni til frekari endurskoðunar á þeim reglum.
Viðskiptaráð leggur áherslu á að við innleiðingu EES-reglna sé almennt nýtt það svigrúm sem þær veita til að draga úr reglubyrði og styrkja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Þá þurfi að samræma stærðarflokkun félaga betur þvert á löggjöf og endurskoða fjárhæðarmörk reglulega.
Viðskiptaráð hvetur til þess að frumvarpið nái fram að ganga, með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn ráðsins.
Umsögnina í heild sinni má lesa hér