Viðskiptaráð Íslands

Kallað eftir svörum um Drekasvæðið: bréf til umhverfisráðherra

Viðskiptaráð hefur sent umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra bréf og óskað eftir upplýsingum um stöðu rýni Umhverfis- og orkustofnunar á gögnum frá fyrri olíuleit á Drekasvæðinu. Ráðið kallar jafnframt eftir svörum um hvernig stjórnvöld hyggist fylgja rýninni eftir og hvort frekari rannsóknir og olíuleit á svæðinu komi til skoðunar.

Í bréfi Viðskiptaráðs til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra óskar ráðið eftir upplýsingum um rýni Umhverfis- og orkustofnunar á gögnum sem liggja fyrir frá fyrri olíuleit á Drekasvæðinu og hver næstu skref stjórnvalda í málinu verði.

Í svari við munnlegri fyrirspurn á Alþingi 18. september 2025 sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að stofnunin ynni að rýni gagnanna og að gert væri ráð fyrir að henni yrði skilað fyrir árslok. Að rýninni lokinni væri unnt að halda umræðunni áfram á grundvelli gagna, staðreynda og vísindaniðurstaðna.

Umræðan byggi á fyrirliggjandi gögnum

Viðskiptaráð telur mikilvægt að þeirri umræðu verði nú haldið áfram og skýrt verði hvernig stjórnvöld hyggjast fylgja niðurstöðum rýninnar eftir.

Ráðið hóf umræðu um mögulega olíuleit á Drekasvæðinu í september 2025 með úttektinni Auðlind í augsýn. Þar var fjallað um möguleg efnahagsleg áhrif olíufundar á svæðinu og bent á að útgáfa sérleyfa til olíuleitar fæli ekki í sér fjárhagslega áhættu fyrir ríkissjóð vegna sjálfrar leitarinnar.

Að mati Viðskiptaráðs er mikilvægt að fyrir liggi hvort og með hvaða hætti stjórnvöld hyggjast nýta fyrirliggjandi gögn til að taka upplýsta ákvörðun um framhald málsins.

Kallað eftir upplýsingum um næstu skref

Viðskiptaráð óskar eftir upplýsingum um hvort rýni Umhverfis- og orkustofnunar hafi verið afhent ráðherra og, ef svo er, hvort og hvar hún verði birt almenningi. Sé rýninni ekki lokið er óskað eftir upplýsingum um hvenær áætlað sé að henni ljúki.

Jafnframt er óskað eftir svörum um hvernig ráðherra hyggist fylgja niðurstöðum rýninnar eftir og hvort til skoðunar sé að bjóða að nýju út sérleyfi til leitar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu eða skapa með öðrum hætti skilyrði fyrir frekari rannsóknir og leit á svæðinu.

Viðskiptaráð telur mikilvægt að niðurstöður rýninnar og fyrirliggjandi gögn verði lögð til grundvallar næstu skrefum. Með því fæst skýrari mynd af þeim tækifærum sem kunna að felast á Drekasvæðinu og hvort tilefni sé til frekari rannsókna.

Tengt efni

Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá …
31. mars 2026

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til enn frekari afhúðunar

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Viðskiptaráð er fylgjandi frumvarpinu og hvetur …
20. mars 2025

Rammáætlun taki mið af áskorunum í orkumálum.

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um þingsályktunartillögu um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Viðskiptaráð …
20. mars 2025

Eyða þarf óvissu um framkvæmdarleyfi virkjana

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Viðskiptaráð fagnar frumvarpinu og …
28. febrúar 2025

Þörf á stærri skrefum í átt til einföldunar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur lagt fram drög að frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á …
20. janúar 2025

Stærsti óvissuþáttur rammáætlunar stendur óhaggaður

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun sem hafði það að markmiði að tryggja skilvirka og …
3. febrúar 2025