Viðskiptaráð Íslands

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

18 íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

18 íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli í dag. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu í ár eru: Alvotech, Arion banki, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Stefnir, Styrkás, VÍS og Vörður tryggingar. Þrjú fyrirtækjanna hljóta nafnbótina í fyrsta sinn, en það eru Bera, Drangar og Styrkás.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda. Fylgni við góða stjórnarhætti stuðlar að faglegri ákvarðanatöku, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja. Þannig verður stjórnarstarf bæði skilvirkara og traustara í augum almennings. Liður í því er meðal annars útgáfa, og regluleg uppfærsla, leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem sjá má á www.leidbeiningar.is.

Fyrirmyndarfyrirtækin 18 eru afar fjölbreytt en þar má nefna fjármála- og tryggingastarfsemi, fasteignafélög, lyfjaframleiðslu, ferðaþjónustu, upplýsingatækni, eignaumsýslu, iðnað og eldsneytis- og orkusölu. Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.

Jón Hreiðar Sigurðsson, verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja, flutti inngangsorð um verkefnið og Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flutti erindi. Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Fundarstjóri var Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Tengt efni

Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2026-2028 voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs, sem fram fór í dag. Andri Þór Guðmundsson var …
10. febrúar 2026

Sautján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

17 íslensk fyrirtæki hlutu í dag nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og …
22. ágúst 2025

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum á föstudaginn …
26. ágúst 2024

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hópur fyrirtækja í fjölbreyttri starfsemi hlaut í dag verðlaun fyrir góða stjórnarhætti
22. ágúst 2023

Fyrirmyndarfyrirtækjum veitt viðurkenning

Sextán fyrirtæki þar sem starfshættir stjórna eru vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar hlutu í dag nafnbótina …
26. ágúst 2022

Sautján fyrirtækjum veitt viðurkenning fyrir góða stjórnarhætti

Í dag, þann 21. ágúst 2020, veittu Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland stjórnum 17 fyrirtækja viðurkenningu …
21. ágúst 2020