Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur valið Björn Brynjúlf Björnsson sem hagfræðing ársins 2026.

Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur valið Björn Brynjúlf Björnsson sem hagfræðing ársins 2026.
Björn Brynjúlfur er hagfræðingur að mennt með meistaragráðu frá Oxford-háskóla.
Á síðustu árum hefur hann stofnað og rekið fjölmörg fyrirtæki á sviði hugbúnaðar og nýsköpunar og hefur frá árinu 2024 starfað sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Meðal þeirra fyrirtækja sem Björn hefur stofnað eru Frami, vefskóli sem gerir fólki kleift að læra af sérfræðingum í fremstu röð á sínu sviði, Elvo, stafrænt þjónustuborð fyrir fyrirtæki, og Moodup, hugbúnaðarfyrirtæki sem mælir starfsánægju á vinnustöðum. Árið 2025 keypti Skyggnir allt hlutafé Moodup.

„Björn Brynjúlfur hefur haft markverð áhrif á íslenska efnahags- og samfélagsumræðu frá því að hann tók við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Undir hans stjórn hefur Viðskiptaráð tekið virkan þátt í umræðu um margvísleg málefni og lagt fram fjölda tillagna að umbótum sem miða að því að bæta efnahag og lífskjör á Íslandi. Það er mat dómnefndar að Björn hafi sýnt einstaka þrautseigju sem frumkvöðull á sviði hugbúnaðar og nýsköpunar og að innkoma hans í Viðskiptaráð hafi haft áhrif á íslenska þjóðfélagsumræðu með áhrifaríkum og eftirtektarverðum hætti,“ segir í tilkynningu dómnefndar.

Björn Brynjúlfur segir vera afar þakklátur fyrir viðurkenninguna.
„Hagfræði snýst í grunninn um að skilja samfélagið betur og finna leiðir til að bæta það. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að starfa bæði að nýsköpun og taka þátt í opinberri umræðu um efnahags- og samfélagsmál á Íslandi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur ársins og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.