Viðskiptaráð Íslands

Hjallastefnan hlaut byltingarverðlaunin 2019

Byltingarverðlaunin 2019 voru veitt í annað sinn á ráðstefnunni Bylting í stjórnun. Í ár runnu verðlaunin til Hjallastefnunnar sem þótti hafa skarað fram úr öðrum við innleiðingu og notkun nýrra og framsækinna stjórnunaraðferða. Allur salurinn reis úr sætum með lófataki er Margrét Pála Ólafsdóttir tók við viðurkenningunni úr hendi Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands.

Myndir frá ráðstefnu Manino og Viðskiptaráðs

Dómnefnd Manino og Viðskiptaráðs Íslands, sem standa að ráðstefnunni, var á einu máli um ómetanlegt framlag Hjallastefnunnar sem sjálfstætt starfandi skóla til jákvæðrar vinnumenningar á Íslandi og valdeflingar starfsfólks.

Ráðstefnan Bylting í stjórnun! var haldin í annað sinn í samstarfi Manino og Viðskiptaráðs. Fjallar ráðstefnan um nútíma stjórnunaraðferðir og hvernig vinnustaðir geti innleitt frelsi á vinnustað með því að efla starfsfólk og búa til vinnukerfi sem laða fram hugmyndaauðgi starfsmanna. Lykilfyrirlesarar voru Traci Fenton stofnandi og eigandi WorldBlu, Garry Ridge forstjóri fyrirtækisins WD40 og Margaret Heffernan, virtur fyrirlesari og frumkvöðull. Pétur Hafsteinsson fjármálastjóri Festi sagði einnig frá reynslu Festis af innleiðingu byltingar í stjórnun. Fundarstjóri var Maríanna Magnúsdóttir, umbreytingaþjálfari Manino.

Manino og Viðskiptaráð Íslands óska Hjallastefnunni innilega til hamingju með viðurkenninguna. Ráðstefnan Bylting í stjórnun! er samstarf Manino og Viðskiptaráðs Íslands og er þetta í annað sinn sem hún er haldin.

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Margrét Pála Ólafsdóttir, höfundur Hjallastefnunnar og Pétur Bergþór Arason, eigandi Manino

Tengt efni

Framkvæmdastjóri VÍ hlýtur verðlaun FKA

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) veitti þremur konum viðurkenningar í dag. Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, hlaut …
17. janúar 2007

Diplómatíska dínamítið

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hélt erindi á ráðstefnu um viðskipti og ríkiserindrekstur á 21. öld fyrir fullum Hátíðarsal Háskóla …
19. mars 2018

Menntamálaráðherra afhendir námsstyrki Viðskiptaráðs

Á árlegu viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands, sem nú fer fram á Reykjavík Hilton Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra námsstyrki …
12. mars 2009

Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rektors Háskólans í Reykjavík, veitt Viðskiptaverðlaunin 2004

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti í dag Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rektors Háskólans í Reykjavík, Viðskiptaverðlaunin 2004. …
21. desember 2004

Viðskiptaráð verðlaunaði útskriftarnema HR

Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað nema sem útskrifast með láði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag, þann 10. …
13. febrúar 2018

Vel heppnuð ráðstefna um viðskipti og ríkiserindrekstur

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hélt erindi á ráðstefnu um viðskipti og ríkiserindrekstur á 21. öld (e. Trade and Diplomacy in the …
19. mars 2018