Viðskiptaráð Íslands

Lísbet Sigurðardóttir til Viðskiptaráðs

Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin í stöðu lögfræðings á málefnasviði Viðskiptaráðs. Hún kemur til ráðsins frá þingflokki Sjálfstæðisflokkins þar sem hún hefur starfað frá árinu 2021.

Lísbet Sigurðardóttir er nýr lögfræðingur hjá Viðskiptaráði.

Lísbet hefur þegar hafið störf hjá Viðskiptaráði og munu störf hennar fyrst og fremst lúta að lögfræðilegum greiningum og úttektum, málefnastarfi, gerð umsagna fyrir hönd ráðsins, greinaskrifum, þátttöku í stefnumótun og fleiri verkefnum ráðsins.

Lísbet lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og BA prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2018.

Lísbet kemur til Viðskiptaráðs frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins þar sem hún starfaði frá árinu 2021. Áður starfaði hún m.a. sem lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, sem laganemi á lögfræðistofunni Jónatansson & Co. og sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Tengt efni

Birta Karen nýr hagfræðingur hjá Viðskiptaráði

Birta Karen Tryggvadóttir hefur verið ráðin hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs. Birta Karen er með B.S.-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og …
22. apríl 2026

Lísbet tekur við sem lögfræðingur Viðskiptaráðs

Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs. Hún mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf, gerð skýrslna og umsagna auk þess að halda …
11. september 2025

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi á málefnasviði

Viðskiptaráð óskar eftir metnaðarfullum lögfræðingi til starfa á málefnasviði. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni sem miða að því að …
17. desember 2024

María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María kemur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og mun hefja störf hjá Viðskiptaráði í ágúst
12. maí 2023

Ragnar Sigurður hefur störf hjá Viðskiptaráði

Ragnar Sigurður Kristjánsson er nýr sérfræðingur á hagfræðisviði Viðskiptaráðs
4. september 2023

Agla Eir lögfræðingur Viðskiptaráðs

Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur tekið við starfi lögfræðings Viðskiptaráðs Íslands
3. febrúar 2020