Viðskiptaráð Íslands

Lísbet tekur við sem lögfræðingur Viðskiptaráðs

Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs. Hún mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf, gerð skýrslna og umsagna auk þess að halda utan um starfsemi Gerðardóms Íslands.

Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs. Hún gekk til liðs við ráðið fyrr á þessu ári sem lögfræðingur á málefnasviði. Lísbet tekur við stöðu lögfræðings af Maríu Guðjónsdóttur sem starfaði hjá Viðskiptaráði frá árinu 2023.

Sem lögfræðingur ráðsins mun Lísbet m.a. sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn, annast umsagna- og skýrslugerð og taka þátt í málefnastarfi ráðsins ásamt því að halda utan um starfsemi Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands

Lísbet lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og BA prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2018. Lísbet kom til Viðskiptaráðs frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins þar sem hún starfaði frá árinu 2021. Áður starfaði hún m.a. sem lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, sem laganemi á lögfræðistofunni Jónatansson & Co. og sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Tengt efni

Birta Karen nýr hagfræðingur hjá Viðskiptaráði

Birta Karen Tryggvadóttir hefur verið ráðin hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs. Birta Karen er með B.S.-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og …
22. apríl 2026

Ragnar Sigurður tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs

Ragnar Sigurður Kristjánsson er nýr hagfræðingur Viðskiptaráðs. Ragnar hefur starfað á málefnasviði Viðskiptaráðs frá 2023.
18. desember 2025

Lísbet Sigurðardóttir til Viðskiptaráðs

Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin í stöðu lögfræðings á málefnasviði Viðskiptaráðs. Hún kemur til ráðsins frá þingflokki Sjálfstæðisflokkins þar …
4. febrúar 2025

Garðar Víðir nýr formaður Gerðardóms VÍ

Ný stjórn Gerðardóms Viðskiptaráðs tók við störfum í maí síðastliðnum. Garðar Víðir Gunnarsson er nýr formaður dómsins og Finnur Magnússon hefur tekið …
25. júní 2025

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi á málefnasviði

Viðskiptaráð óskar eftir metnaðarfullum lögfræðingi til starfa á málefnasviði. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni sem miða að því að …
17. desember 2024

María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María kemur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og mun hefja störf hjá Viðskiptaráði í ágúst
12. maí 2023