Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð styrkir afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Gunnar Þorsteinsson, Helga Kristín Ólafsdóttir, Ísak Valsson og Vigdís Gunnarsdóttir. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.000.000 kr.

Árlega veitir Menntasjóður Viðskiptaráðs námsstyrki til íslenskra nemenda í framhaldsnámi í atvinnulífstengdum greinum á háskólastigi. Námsstyrkjum úr Menntasjóði Viðskiptaráðs er einkum ætlað að mæta kostnaði vegna skólagjalda og rannsóknarnáms og eru þeir veittir vegna framhaldsnáms í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess.

Auglýst var eftir umsóknum síðla árs 2022 og var umsóknarfresturinn til og með 8. janúar 2023 en að þessu sinni ákvað valnefnd sjóðsins að leggja áherslu á að styrkja nemendur í framhaldsnámi á háskólastigi í svokölluðum STEAM greinum, auk þess að styrkja að minnsta kosti einn nemanda í orkutengdum greinum.

Styrkþegar ársins voru svo tilkynntir á Viðskiptaþingi 9. febrúar 2023, sem einmitt var helgað orkumálum, en hvert þeirra hlaut námsstyrk að upphæð 1.000.000 kr.

Styrkþegar úr Námsstyrkjasjóði Menntasjóðs Viðskiptaráðs árið 2023 eru:

  • Gunnar Þorsteinsson, doktorsnemi í rafhlöðuverkfræði við Columbia-háskóla
  • Helga Kristín Ólafsdóttir, doktorsnemi í hagnýtri stærðfræði og tölfræði við Gautaborgarháskóla
  • Ísak Valsson, doktorsnemi í tölfræði við Oxford-háskóla
  • Vigdís Gunnarsdóttir, meistaranemi í hagnýtris stærðfræði við ETH Zürich

Það var valnefnd Námsstyrkjasjóðs sem valdi styrkþegana úr stórum hópi umsækjenda, en nefndina skipa þau dr. Ari Kristinn Jónsson, forstjóri AwareGO, dr. Daði Már Kristófersson, prófessor og varadeildarforseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fyrrum forstjóri Actavis á Íslandi.

Viðskiptaráð óskar styrkþegum innilega til hamingju með styrkina en hér fyrir neðan má sjá stuttar myndbandskveðjur frá styrkþegunum fjórum. Viðskiptaráð þakkar einnig þeim fjölmörgu sem sendu inn styrkumsókn þetta árið en valnefndin var einróma um að hópur umsækjenda væri afar sterkur.

Tengt efni

Viðskiptaráð styrkir þrjá afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Arnar Ágúst Kristjánsson, Hildur Þóra Hákonardóttir og Jón Valur Björnsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.500.000 kr.
3. mars 2026

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2026.
5. janúar 2026

Viðskiptaráð styrkir fjóra afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Brimar Ólafsson, Hildur Hjörvar, Kári Rögnvaldsson og Svala Sverrisdóttir. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.000.000 kr.
18. febrúar 2025

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.
18. desember 2024

Styrkveiting úr Menntasjóði Viðskiptaráðs 2022

Styrkþegar í ár eru Anton Óli Richter, Esther Hallsdóttir, Guðrún Höskuldsdóttir og Njáll Skarphéðinsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð …
23. maí 2022

Ert þú í framhaldsnámi erlendis?

Nú er opið fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023.
29. nóvember 2022