Viðskiptaráð Íslands

Morgunverðarfundur um aðhald í ríkisrekstri

Fimmtudaginn 18. september, kl. 8.30-10.00, standa Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni "Er aðhaldinu lokið? Framvinda og horfur í rekstri hins opinbera." Á fundinum verður fjallað um stöðu ríkisreksturs, framvindu tillagna hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar og helstu viðfangsefni í ríkisfjármálum á komandi misserum. Meðal ræðumanna eru Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður og formaður hagræðingarhópsins.

Í pallborði verða eftirtaldir aðilar:

  • Ásmundur Einar Daðason
  • Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB
  • Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður
  • Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já
  • Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Fundarstjórn er í höndum Frosta Ólafssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands.

Aðgangseyrir er 2.900 kr. og er morgunverður í boði frá kl. 8.15. 

Skráning hér

Tengt efni

Einfalda megi skattkerfið

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fullyrti að einfalda …
16. janúar 2026

Myndband: Er ríkið farið að þjónusta sig sjálft?

Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs, fjallar um opnunartíma …
15. janúar 2026

Aðalfundur Viðskiptaráðs 2026

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fer fram þriðjudaginn 10. febrúar kl. 11:30 í …
13. janúar 2026