Í nýju örmyndbandi fer Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, yfir stöðuna á námsgagnamarkaði: ríkisútgáfu sem fær um 85% opinbers fjár, rýrnandi framlög og kennara sem búa margir hverjir sjálfir til námsefni.

Í nýju örmyndbandi (e. reel) fer Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, yfir stöðuna á námsgagnamarkaði. Ríkið er langstærsti útgefandi námsgagna hér á landi og framlög til námsgagnasjóða hafa rýrnað verulega.
Sjá myndbandið á Facebook og Instagram.
Nánar er fjallað um málið í staðreyndinni Barnið vex en bókin ekki og í greininni Ójöfn staða á námsgagnamarkaði.
Vissir þú að á Íslandi er í reynd ríkiseinokun á útgáfu námsgagna?
Um 85 prósent af opinberu fé til námsgagnakaupa fer til ríkisútgáfunnar. Þannig er aðeins sjötta hver bók valin af skólunum sjálfum.
Formlega mega skólar kaupa bækur af einkaaðilum, en þegar valið stendur milli efnis sem ríkið afhendir skólunum án endurgjalds og efnis sem þarf að greiða sérstaklega fyrir er samkeppnisgrundvöllurinn afar ójafn.
Á Norðurlöndunum er það almennt þannig að einkaaðilar sjá um útgáfu námsgagna og er Ísland eina Norðurlandið sem er með miðstýrða ríkisútgáfu námsgagna.
Á sama tíma eru framlög til námsgagnasjóðanna um þriðjungur af því sem þau voru árið 2007 að raunvirði.
Sjö af hverjum tíu kennurum nota námsefni sem er búið til innan veggja skólans. Sama vinnan er því unnin aftur og aftur um allt land. Þetta er óskilvirkt og tekur tíma frá kennurum sem gæti nýst betur í annað.
Viðskiptaráð leggur til að allt fjármagn til námsgagnakaupa renni í Námsgagnasjóð og skólarnir fái sjálfir að velja hvaða námsefni henta nemendum þeirra best. Ríkið myndi ennþá tryggja gæði og samræmi við aðalnámskrá.
Með því að auka valfrelsi skóla skapast hvati fyrir útgefendur námsgagna til að búa til efni sem hentar þörfum kennara og nemenda, stuðla að meiri fjölbreytni og tryggja betri gæði og hagkvæmara verð.
Ríkið á ekki að sjá um útgáfu námsgagna. Það á bara að tryggja að þau þjóni nemendum sem best.