Viðskiptaráð Íslands

Ójöfn staða á námsgagnamarkaði

„Það er enda ekki hlutverk ríkisins að tryggja stöðu eigin útgáfu á markaðnum, heldur að sjá til þess að nemendur hafi aðgang að því námsefni sem best þjónar þörfum þeirra.“

Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs

Hér á landi er ríkið langstærsti útgefandi námsgagna og svigrúm einkaaðila til að hasla sér völl á markaðnum er takmarkað undir núverandi fyrirkomulagi. Fyrir vikið er samkeppni lítil á námsgagnamarkaði þar sem aukin fjölbreytni, nýsköpun og valfrelsi gætu skilað ávinningi fyrir bæði kennara og nemendur.

Ríkið leikur eitt á vellinum

Í dag annast Miðstöð menntunar og skólaþjónustu framleiðslu og dreifingu námsefnis sem skólarnir fá afhent án endurgjalds. Jafnframt geta skólar sótt framlög úr Námsgagnasjóði til kaupa á öðru námsefni. Þótt skólarnir hafi þannig formlega val um námsefni er fjármögnun þessara tveggja leiða afar ójöfn. Á síðasta ári runnu um 458 milljónir króna til námsefnissviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, samanborið við 85 milljónir króna til Námsgagnasjóðs. Af samanlögðum framlögum hins opinbera til námsgagnagerðar renna því um 85% til ríkisútgáfunnar. Það jafngildir um 9.800 krónum á hvern grunnskólanema til ríkisútgáfunnar en aðeins 1.800 krónum sem skólarnir geta sjálfir ráðstafað til námsgagnakaupa.

Þessi ójafna skipting fjármagns gerir einkaaðilum nær ómögulegt að keppa við ríkið á þessum markaði, enda þurfa skólar að velja milli námsefnis sem ríkið afhendir án endurgjalds og efnis sem greiða þarf sérstaklega fyrir. Slíkt fyrirkomulag er í reynd ígildi ríkiseinokunar. Ekkert bendir til þess að markaðsbrestur kalli á að ríkið annist meginhluta útgáfunnar, enda er hún að mestu í höndum einkaaðila á hinum Norðurlöndunum.

Kennarar hlaupa í skarðið

Þar sem virk samkeppni er takmörkuð hamlar það hvata til framþróunar og valkostum fækkar. Þetta á ekki síður við um námsgögn en aðra markaði. Skortur á námsgögnum virðist enda fara vaxandi í íslenskum skólum, en samkvæmt nýjustu PISA-könnuninni sótti fjórðungur íslenskra nemenda skóla þar sem skólastjórnendur töldu skort á námsgögnum hamla kennslu, samanborið við 17% árið 2022. Kennarar hafa brugðist við þessu með því að útbúa eigið efni. Samkvæmt könnun Menntamálastofnunar, forvera Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, frá árinu 2023 notuðu sjö af hverjum tíu kennurum oft eða mjög oft námsefni sem búið var til innan skólans. Ætla má að sú vinna takmarkist við viðkomandi skóla og því getur sama vinnan verið endurtekin víða, á tíma sem annars færi í kennslu eða undirbúning hennar.

Fjármagn fylgi skólunum

Ríkið ætti ekki sjálft að standa að framleiðslu námsgagna þótt því sé ætlað að tryggja aðgengi að þeim. Eðlilegra væri að allt opinbert fjármagn til námsgagnakaupa rynni í gegnum Námsgagnasjóð og að skólarnir fengju sjálfir að velja það námsefni sem best hentar nemendum þeirra. Þannig mætti skapa jafnari samkeppnisgrundvöll þar sem ólíkir útgefendur kepptu um að bjóða skólunum vandað námsefni, með tilheyrandi hvata til aukinna gæða, fjölbreyttara framboðs og hagkvæmari verðlagningar. Það er enda ekki hlutverk ríkisins að tryggja stöðu eigin útgáfu á markaðnum, heldur að sjá til þess að nemendur hafi aðgang að því námsefni sem best þjónar þörfum þeirra.

Greinin birtist fyrst á Vísi.

Tengt efni

Barnið vex en bókin ekki

Ríkið afhendir skólum námsgögn án endurgjalds sem skapar ójafnan samkeppnisgrundvöll og gerir einkaaðilum nánast ókleift að hasla sér völl á …
5. nóvember 2026

Samkeppni snýst um meira en fjölda

Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs, fjallar um einfalda framsetningu á fákeppni og segir mikilvægt að gera greinarmun á fákeppni og …
9. júlí 2026

Tækifæri í rusli

Markmið sorpþjónustu á að vera að tryggja íbúum góða þjónustu með sem skilvirkustum hætti. Til þess þarf gagnsæi, samanburð og virkari samkeppni. …
13. maí 2026

Áttaviti hins opinbera

„Opinberar íhlutanir virðast stundum vera notaðar sem yfirvarp stjórnvalda sem ekki vilja horfast í augu við að þau sjálf skapa flest vandamál sem eru …
17. febrúar 2026

Auka ætti frelsi í ráðstöfun útvarpsgjalds

Viðskiptaráðs styður að neytendum verði veitt aukið frelsi til að ráðstafa útvarpsgjaldinu með þeim hætti sem þeir kjósa. Ganga mætti enn lengra og …
8. desember 2025

Staða RÚV einsdæmi á Norðurlöndum

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur um árabil einkennst af verulegum skekkjum, þar sem Ríkisútvarpið nýtur bæði opinberra framlaga …
26. september 2025