Viðskiptaráð Íslands

Upplifa kynin vinnustaðinn á ólíkan hátt?

Árleg könnun á stöðu, upplifun og líðan starfsfólks í fyrirtækjum á Íslandi þar sem sérstaklega er horft til þess hvort greina megi mun eftir kyni.

Empower, Viðskiptaráð, Gallup og Háskóli Íslands kynna í dag samstarfsverkefnið „Kynin og vinnustaðurinn“. Árlega verður gerð könnun á stöðu, upplifun og líðan starfsfólks í fyrirtækjum á Íslandi þar sem sérstaklega er horft til þess hvort greina megi mun eftir kyni.

Lagðar verða spurningar fyrir starfsfólk í um 200 fyrirtækjum sem eiga aðild að Viðskiptaráði. Einnig verður staða kynjanna í stjórnunarlögum fyrirtækjanna tekin saman til þess að miðla því hvort og þá hvernig halli á eftir kynjum.

Með niðurstöðum könnunarinnar verður hægt að fá vísbendingu um það hvort kyn skipti máli í menningu og þá með hvaða hætti ójafnrétti kynja birtist. Með betri upplýsingum og vel skilgreindum viðmiðum eru meiri líkur á því að stjórnendur geti metið hvort ástæða sé til að grípa til aðgerða til að bæta stöðu kynjanna innan síns fyrirtækis. Niðurstöðurnar ættu því að nýtast öllu atvinnulífinu og samstarfaðilar vonast til þess að verkefnið verði hreyfiafl til jákvæðrar þróunar í jafnréttismálum.

Niðurstöðurnar verða kynntar á opnum fundi í maí og með kynningarátaki en verða aðgengilegar öllum eftir fundinn.

Tengt efni

Viðskiptaráð bakhjarl rannsóknar í því hvernig loka megi kynjabilinu í atvinnulífinu

„Tilgangur rannsóknanna og framlag til vísindasamfélagsins er að koma auga á og benda á færar leiðir til þess að loka því kynjabili sem enn ríkir í …
25. október 2023

Fjölbreytni í stjórnum - erum við á réttri leið?

Þriðjudaginn 5. febrúar fer fram ráðstefna sem ætlað er að ýta undir umræðu um kynjahlutföll í stjórnum. Hún er liður í að fylgja eftir …
5. febrúar 2013

Aukin fjölbreytni í forystu íslensks atvinnulífs

Í gær var haldinn fundur undir yfirskriftinni Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu, en þar kom saman um 300 manna fjölbreyttur hópur karla …
11. febrúar 2010

Virkjum karla og konur

Fundurinn „Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu“ verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 10. febrúar næstkomandi. Forsaga fundarins …
10. febrúar 2010

Virkjum karla & konur til athafna

Alþjóðaráðstefna Félags kvenna í atvinnurekstri í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins fer fram á Hilton Reykjavík Nordica …

Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf?

Fjallað var um niðurstöður könnunar um rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð í skýrslu sem birt var …
17. febrúar 2010