Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Sjö útskriftarnemar úr Háskólanum í Reykjavík tóku við viðurkenningu frá Viðskiptaráði Íslands við útskriftarathöfn sem fram fór laugardaginn 20. júní síðastliðinn

Viðskiptaráð Íslands verðlaunaði útskriftarnemendur við útskrift Háskólans í Reykjavík sem fram fór laugardaginn 20. júní sl, en ráðið hefur verðlaunað nemendur skólans fyrir góðan námsárangur allt frá því að HR útskrifaði sína fyrstu nemendur. Að þessu sinni voru útskriftarathafnirnar tvær talsins. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur ráðsins, veitti dúxum tæknisviðs viðurkenningu á fyrri athöfn dagsins og Agla Eir Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur ráðsins, veitti dúxum samfélagssviðs verðlaun á síðari athöfn.

Viðurkenningu hlutu:

Gunnar Guðmundsson, fyrir bestan árangur í íþróttafræði.

Hákon Ingi Stefánsson, fyrir bestan árangur í rafiðnfræði.

Hávar Snær Gunnarsson, fyrir bestan árangur í hagfræði og fjármálum.

Íris Þóra Júlíusdóttir fyrir bestan árangur í lögfræði.

Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir, fyrir bestan árangur í sálfræði.

Kristjana Ósk Kristinsdóttir, fyrir bestan árangur í heilbrigðisverkfræði.

Þórður Friðriksson, fyrir bestan árangur í hugbúnaðarverkfræði.

Viðskiptaráð óskar útskriftarnemum HR hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Tengt efni

Menntun er fjársjóður - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 21. júní útskrifuðust 697 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og …
24. júní 2025

Stöðnun á grunnskólastigi - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 22. júní útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Björn Brynjúlfur Björnsson, …
24. júní 2024

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Sjö útskriftarnemar úr Háskólanum í Reykjavík tóku við viðurkenningu frá Viðskiptaráði Íslands við útskriftarathöfn sem fram fór laugardaginn 19. júní …
21. júní 2021

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað nema sem útskrifast með láði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag, þann 17. júní, …
19. júní 2017

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað nema sem útskrifast með láði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag var árleg …

Viðskiptaráð verðlaunaði útskriftarnema HR

Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað nema sem útskrifast með láði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag, þann 10. …
13. febrúar 2018