Viðskiptaráð Íslands

Bensíni hellt á verð­bólgu­bálið

„Það er ódýrt að skella skuldinni á aðra þegar ríkisvaldið keyrir sjálft upp kostnað neytenda með því að hækka neysluskatta með skömmum fyrirvara. Valdhafar geta ekki verið hissa á því að varnaðarorð margra aðila hafi nú raungerst. Í viðbrögðum sínum væri nær að taka ábyrgð á erfiðri stöðu og ráðast að rót vandans á útgjaldahlið ríkissjóðs.“

Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Hagstofan birti nýverið verðbólgutölur fyrir janúar sem ollu miklum vonbrigðum. Verðbólgan hækkaði um 0,38% á milli mánaða og mælist nú 5,2% á ársgrundvelli – það hæsta frá því í september 2024.

En það voru ekki bara tölurnar sem ollu vonbrigðum, heldur einnig viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Í stað þess að líta í eigin barm ákváðu leiðtogar landsins að gera olíufélög og bílaumboð að sökudólgum. Það má telja sérstakt í ljósi þess að hækkunina má rekja til aðgerða ríkisstjórnarinnar sjálfrar: hækkunar vörugjalda á bifreiðar og lækkunar rafbílastyrks.

Skuldinni skellt á aðra

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, varpaði ábyrgð á olíufélögin: „Við sjáum það á tölunum að lækkun á eldsneytisverði er ekki að mæta að fullu þeirri lækkun sem við bjuggumst við miðað við okkar lækkanir. Þannig að ég set að hluta til ábyrgð á olíufélögin hvað það varðar. Þau þurfa að passa sig þegar kemur að verðlagningu. Ég veit að þau finna hitann af því og ég treysti því að þau geri þetta með sanngjörnum hætti,” sagði Kristrún.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráherra, tók í svipaðan streng: „Hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta, þ.e.a.s. hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu og álagningu eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningu á bifreiðar,“ sagði Daði.

Eldsneytisverð rímar en vörugjöld vanmetin

Þrátt fyrir þessar fullyrðingar þá rímar þróun eldsneytisverðs nákvæmlega við spá stjórnvalda sjálfra. Í áhrifamati sem fylgdi frumvarpi um kílómetragjald var gert ráð fyrir að nettóáhrif kílómetragjalds og niðurfellingar eldsneytisgjalda yrði á bilinu 0 til 0,10% til hækkunar á vísitölu. Raunin varð 0,05% hækkun. Því benda verðbólgutölur til þess að lækkun eldsneytisgjalda hafi skilað sér nákvæmlega eins og að var stefnt.

Stjórnvöld virðast hins vegar hafa misreiknað áhrif hærri vörugjalda á ökutæki og skertra rafbílastyrkja hrapallega. Í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu kom fram að áætluð áhrif hærri vörugjalda yrðu um 0,10% til hækkunar á vísitölu. Raunin varð 0,56% hækkun. Sú hækkun er stærsti orsakaþáttur hærri verðbólgumælingar núna í janúar.

Bensínbrúsinn

Það er ódýrt að skella skuldinni á aðra þegar ríkisvaldið keyrir sjálft upp kostnað neytenda með því að hækka neysluskatta með skömmum fyrirvara. Tillaga um hækkun vörugjalda var lögð inn til Alþingis milli umræðna um fjárlög og fékk því ekki sjálfstæða þinglega meðferð. Stjórnvöld áætla 7,5 ma. kr. í viðbótartekjur vegna hækkunarinnar, sem er svipuð upphæð og hækkun veiðigjalda á að skila.

Valdhafar geta ekki verið hissa á því að varnaðarorð margra aðila hafi nú raungerst. Í viðbrögðum sínum væri nær að taka ábyrgð á erfiðri stöðu og ráðast að rót vandans á útgjaldahlið ríkissjóðs. Áður en stjórnvöld kenna öðrum um að kynda undir verðbólgubálið ættu þau að byrja á því að leggja frá sér bensínbrúsann.

Greinin birtist fyrst á Vísi, 3. febrúar 2026.

Tengt efni

Tryggja þarf að kílómetragjald leiði ekki til óhóflegrar skattheimtu

Viðskiptaráð styður markmið stjórnvalda um sjálfbært og sanngjarnt kerfi gjaldtöku í frumvarpi til laga um kílómetragjald. Ráðið leggur áherslu á að …
28. október 2025

Staða RÚV einsdæmi á Norðurlöndum

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur um árabil einkennst af verulegum skekkjum, þar sem Ríkisútvarpið nýtur bæði opinberra framlaga …
26. september 2025

Breyting sem bitnar helst á fjölmiðlum sem veita stjórnvöldum aðhald

Viðskiptaráð lýsir áhyggjum af auknum umsvifum RÚV og minnkandi sjálfstæði einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins um …
20. maí 2025

Kílómetragjald og hækkun kolefnisgjalds framundan

Fjármála- og efnhagsráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um kílómetragjald sem lið í innleiðingu nýs kerfis sem á að tryggja sjálfbæra …
20. mars 2025

Opinbert styrkjakerfi ekki lausnin

Viðskiptaráð hefur tekið til skoðunar frumvarp sem felur í sér breytingar á opinberu styrkjakerfi fjölmiðla. Ráðið varar við að slíkt kerfi viðhaldi …
7. mars 2025

Menntakerfi með ómarktækar einkunnir

„Færni og framtíðartækifæri grunnskólabarna eiga að vera undir þeim sjálfum komin. Það leiðir til betri árangurs bæði fyrir nemendur og skólakerfið í …
7. mars 2025