Viðskiptaráð Íslands

Hver ættu kosningaloforðin að vera

Nú þegar líður að kosningum spretta loforð stjórnmálaflokka landsins upp eins og krókusar að vori. Mörg af þeim eru góð, önnur verri og ýmis slæm. Aðstæður eru um margt óvenjulegar í hagkerfinu um þessar mundir og því eðlilegt að taka tillit til þeirra þegar loforðin eru lögð fram. Í því samhengi er vert að benda á skoðun Viðskiptaráðs frá því í haust þar sem bent var á mikilvægi þess að halda kosningaþenslu í lágmarki.

Með loforðum sínum og orðræðu fyrir kosningar gefa stjórnmálaflokkar til kynna áherslur sínar og stefnu. Viðskiptaráð hefur ávallt leitast við að vera stefnumótandi afl með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni íslensks hagkerfis og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Það er því ekki úr vegi að benda á æskileg kosningaloforð, hafi stjórnmálaflokkar landsins hug á að fylgja sömu markmiðum.

Einfaldara og skilvirkara skattkerfi og afnám allra tolla og viðskiptahindrana myndi skipa íslensku viðskiptaumhverfi í fremstu röð í alþjóðlegu samhengi. Hægt er að lyfta grettistaki í hagkvæmni og skilvirkni í ríkisrekstri með fækkun ráðuneyta og stofnanna, auk endurskilgreiningar á starfsmannastefnu ríkisins. Ríkið ætti ennfremur að draga sig út úr allri beinni atvinnustarfsemi, þar með töldum orkugeiranum. Viðskiptaráð telur mikla möguleika felast í aukinni einkaframkvæmd og bendir þar sérstaklega á nýjar leiðir í mennta- og samgöngumálum. Það er mat ráðsins að ofangreindar tillögur geti gagnast öllum stjórnmálaflokkum, enda er tilgangur þeirra fyrst og fremst að bæta ríkisrekstur, rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni landsins.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Kosningapróf Viðskiptaráðs: hvar stendur þú?

Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði þeir standa næst í efnahagsmálum. Prófið samanstendur af 60 …
21. nóvember 2024

Bætt framleiðni, meira samstarf og minni byrðar bestu kosningaloforðin

Nú á lokametrum kosningabaráttunnar eru línur teknar að skýrast í helstu stefnumálum stjórnmálaflokkanna. Af áherslum þeirra og almennri umræðu að …
24. apríl 2013

Kaupum ekki köttinn í sekknum

Flestir stjórnmálamenn gefa kosningaloforð. Það er eðlilegur hluti kosningabaráttu og gefur kjósendum mynd af stefnu og forgangsröðun ólíkra flokka. …
27. október 2016

Tölum um hlutina eins og þeir eru

Í aðdraganda nýliðinna kosninga voru allir flokkar sammála um mikilvægi þess að móta langtímastefnu í efnahagsmálum sem lagt gæti grunn að sjálfbærum …
4. júlí 2013

Sameinuð stöndum vér

Ófáir velta nú fyrir sér tillögum sem lagðar voru fram í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Er þar margt áhugavert að finna þó að erfitt sé að …
12. desember 2017

Uppnám eða uppbygging?

Nú í upphafi vetrar, fjórum árum eftir hrun fjámálakerfis og gjaldmiðils og í upphafi kosningaveturs er forvitnilegt að meta stöðu íslensks efnahags- …