Viðskiptaráð Íslands

Sveitarfélög og samkeppnisraskanir

Reykjavíkurborg hóf nýlega að auglýsa endurvinnslutunnur undir pappírsúrgang fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög. Hingað til hefur borgarbúum boðist að aka með pappírsúrgang sinn í nálægar grenndarog endurvinnslustöðvar. Um er að ræða aukna þjónustu við borgarbúa samkvæmt auglýsingunni og er þetta hluti af áætlun Reykjavíkurborgar um að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Aukin umhverfisvitund forsvarsmanna borgarinnar er fagnaðarefni og til fyrirmyndar fyrir önnur sveitarfélög.

Þrátt fyrir góð og göfug markmið framangreindrar áætlunar Reykjavíkurborgar er rétt að merkja að þegar er virk samkeppni tveggja einkaaðila til staðar á umræddum markaði. Tvö einkafyrirtæki hafa um árabil boðið borgarbúum uppá eðlislíkar endurvinnslutunnur. Eru borgaryfirvöld því að ráðast í beina samkeppni við einkaaðila. Líkleg afleiðing er að fyrirtækin neyðist til að draga sig í hlé, enda er þeim nær ómögulegt að keppa við borgina, sem bæði hefur lögbundna tekjustofna og er undanskilin tekjuskatti. Ber því við að spyrja hvort þessi þjónusta sé af því tagi að aðkoma sveitarfélags sé nauðsynleg? Er það í hag Reykvíkinga að fjármunum þeirra sé ráðstafað í viðbótarþjónustu sem þegar er sinnt af einkaaðilum? Er slík röskun á samkeppni borgarbúum í hag?

Viðskiptaráð leggur almennt áherslu á að sem flest verkefni á vegum sveitarfélaga séu boðin út. Engu að síður er afar óheppilegt að sveitarfélög bjóði út verkefni á þeim mörkuðum sem fyrir ríkir virk samkeppni einkaaðila. Ráðið hvetur sveitarfélög landsins til að endurskoða innkaupastefnur sínar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir slíka samkeppnisröskun.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Tækifæri í rusli

Markmið sorpþjónustu á að vera að tryggja íbúum góða þjónustu með sem skilvirkustum hætti. Til þess þarf gagnsæi, samanburð og virkari samkeppni. …
13. maí 2026

Kosningapróf Viðskiptaráðs: hvar stendur þú?

Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði í Reykjavíkurborg þeir standa næst í lykilmálum og verkefnum …
30. apríl 2026

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð

Viðskiptaráð Íslands telur breytt frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda …
3. maí 2024

Endurskipulagning stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar áform um endurskipulagningu stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Ráðið fagnar áður framlögðum …
20. október 2023

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um endurnot opinberra upplýsinga

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um frumvarp til breytinga á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (Mál nr. 190/2023).
27. október 2023

Hið opinbera: tími til breytinga

Í nýju riti Viðskiptaráðs, „Hið opinbera: tími til breytinga“, er lögð fram heildstæð sýn ráðsins á hlutverk, rekstur og fjármögnun hins opinbera …
13. febrúar 2015