Viðskiptaráð Íslands

Nútímavæðing sparisjóðaumhverfisins

Á undanförnum árum hefur orðið mikil og ör þróun í starfsemi sparisjóðanna. Nú er svo komið að þeir eru þátttakendur á flestum þeim sviðum sem aðrir viðskiptabankar starfa. Framþróun og vöxtur sparisjóðanna hefur leitt í ljós talsverð vandkvæði á núverandi starfsumhverfi. Nýleg tillaga stjórnar SPRON um hlutafjárvæðingu sjóðsins er skynsamleg tilraun til að draga úr þeim skorðum sem lagaumhverfið setur sparisjóðunum. Það er þó ljóst að slíkur gjörningur er óraunhæfur möguleiki fyrir marga sjóði.

Lagaumhverfi sparisjóðanna hefur breyst með tíð og tíma. Upphaflega var m.a. óheimilt að framselja stofnbréf, lögbundið var að hluti stjórnar væri skipaður opinberum starfsmönnum og miklar skorður voru settar við útgreiðslu arðs af stofnfjárbréfum. Tekin hafa verið skref í rétta átt hvað ýmsa þætti varðar, en núverandi fyrirkomulag er þó ekki til þess fallið að stuðla að frekari framþróun sjóðanna. Samkeppnisstaða þeirra er veik gagnvart viðskiptabönkunum, gagnsæi og lagaumhverfi óhagfellt og síðast en ekki síst er eignarhald og ráðstöfunarréttur sjóðanna óskýr. Viðskiptaráð telur afar brýnt að taka lagaumhverfi og fyrirkomulag kerfisins til endurskoðunar, sé ætlun stjórnvalda að tryggja vöxt og viðgang þess, styrkja byggðir sem sjóðirnir tilheyra og varðveita hagsmuni stofnfjáraðila.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Hlutverk ríkisins á íbúðalánamarkaði

Ekki er langt síðan ríkið starfrækti ýmsa sjóði eins og Framkvæmdasjóð, Hlutafjársjóð og Iðnþróunarsjóð. Tímar og aðstæður breyttust og sjóðir þessir …
20. desember 2004

Samkeppni í breyttri heimsmynd

Viðskiptaráð telur að í ljósi breytts umhverfis viðskipta og verslunar, m.a. vegna tækniþróunar, aukinnar netverslunar og innkomu erlendra aðila, sé …
20. september 2017

Góð ráð dýr

Þegar horft er til þess tíma sem liðinn er frá hruni bankanna má sjá bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á þeirri þróun sem hefur átt sér stað. Hvað hið …
18. janúar 2010

Gjaldeyrismál

Staðan á gjaldeyrismarkaði er lítið breytt og er temprun gjaldeyrisútflæðis enn við lýði. Bankarnir þrír geta að einherju leyti sinnt erlendri …
31. október 2008

Einkaaðilar á okkar vegum

Á síðustu árum hefur aukin umræða farið fram í samfélaginu um mikilvægi einkaframkvæmda á ýmsum sviðum. Í þessu augnamiði hefur Viðskiptaráð bent á …
16. júní 2006