Viðskiptaráð Íslands

Endurreisn í samstarfi við alþjóðasamfélagið

Til að Ísland geti endurheimt stöðu sína sem öflugur þátttakandi í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi er nauðsynlegt að stjórnvöld leggi ríka áherslu á farsælt samstarf við erlenda aðila, fyrst og fremst með milligöngu og aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Sá vandi sem hefur myndast í efnahagsmálum þjóðarinnar verður aðeins leystur í samstarfi við alþjóðasamfélagið enda ljóst að aðrir kostir myndu leiða til efnahagslegrar einangrunar með tilheyrandi stöðnun og velferðartapi. Það var farsælt samstarf við alþjóðasamfélagið sem losaði íslensku þjóðina úr fjötrum fátæktar á sínum tíma og þetta sama samstarf mun koma þjóðinni á braut varanlegrar endurreisnar.

Sagan sýnir að samningar við alþjóðasamfélagið eru forsenda farsællar endurreisnar þjóða sem lent hafa í alvarlegum efnahagsáföllum. Í tilviki Íslands kallar þetta á að gengið verði endanlega frá samningum um innstæðutryggingar og samningum um greiðslur úr þrotabúum gömlu bankanna eftir því sem eignir duga til. Hér þarf að hafa sanngirni og samstarfsvilja að leiðarljósi til að tryggja sem víðtækasta sátt um niðurstöðu þessara mála. Aðeins þannig mun alþjóðasamfélagið viðurkenna Ísland sem trúverðugt og áreiðanlegt afl á vettvangi alþjóðlegra viðskipta í framtíðinni.

Skoðunina í heild má nálgast hér.

Tengt efni

Brýnt að hefja samstarf við IMF

Ljóst er að íslenska ríkið þarf utanaðkomandi aðstoð til að greiða úr þeim vanda sem upp er kominn, ekki síst vegna þess ófremdarástands sem nú ríkir …
20. október 2008

Styttist í alþjóðlega athafnaviku

Við þær aðstæður sem nú ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar er brýnt að líta fram á við og huga að nýjum sóknarfærum. Efnahagsleg velferð landsins …
10. nóvember 2009

Virk samkeppni grundvöllur endurreisnar

Opinber umræða um málefni Sementsverksmiðjunnar á Akranesi og Aalborg Portland ber þess glöggt merki hversu bágborin staða íslensks atvinnulífs er. …
27. ágúst 2009

Viðskiptaráð fagnar samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Viðskiptaráð Íslands fagnar því að ríkisstjórn Íslands hafi óskað eftir formlegu samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um að koma á …
24. október 2008

Aðgerðir í þágu atvinnulífsins

Framundan er tímabil efnahagslegrar endurreisnar í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins. Verulega hefur hægst á hjólum atvinnulífs vegna …

Ein þjóð leysir vandann

Það er margur vandinn sem nú blasir við Íslendingum. Hann má flokka í þrennt; hagrænan, stjórnmálalegan og hugarfarslegan. Hagrænn vandi endurspeglast …
15. október 2010