Viðskiptaráð Íslands

Einföldun byggingarreglugerðar þarf að skila sér í framkvæmd

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsdraga um einfaldara regluverk mannvirkjagerðar og áhættumiðað byggingareftirlit, enda er það forsenda aukins framboðs hagkvæms húsnæðis. Ráðið leggur þó áherslu á að ábyrgð eftirlitsaðila verði afmörkuð í lögunum sjálfum, að gjaldtaka verði hófleg og að skýrt verði að leiðbeinandi tilmæli HMS geti ekki ein og sér lagt skyldur á framkvæmdaraðila.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind frumvarpsdrög. Ráðið skilaði umsögn um áform um lagasetninguna og vísar til hennar eftir því sem við á.

Markmiðið með frumvarpsdrögunum er að einfalda regluverk mannvirkjagerðar, skýra ábyrgð þeirra sem koma að framkvæmdum og gera byggingareftirlit markvissara og áhættumiðaðra. Meðal annars er gert ráð fyrir að mannvirki verði flokkuð eftir áhættu og að umfang eftirlits taki mið af eðli og umfangi framkvæmda.

Ráðið styður markmið stjórnvalda um einfaldara og markmiðs­drifnara regluverk mannvirkjagerðar og skilvirkara, áhættumiðað eftirlit. Flókið regluverk og umfangsmikil stjórnsýsla geta aukið byggingarkostnað og tafið framkvæmdir án samsvarandi ávinnings. Einfaldara regluverk og skilvirkara eftirlit eru því mikilvæg forsenda aukins framboðs hagkvæms húsnæðis, stöðugleika á húsnæðismarkaði og bættra lífskjara.

Að mati ráðsins eru ýmsar breytingar frumvarpsins jákvæðar. Þó er brýnt að þær leiði til raunverulegrar einföldunar í framkvæmd, skýrari ábyrgðarskiptingar og minni kostnaðar, án þess að slakað sé á nauðsynlegum kröfum um öryggi og gæði mannvirkja. Ráðið telur tilefni til að gera athugasemdir við einstök ákvæði frumvarpsins, einkum varðandi framkvæmd áhættumiðaðs eftirlits og réttaráhrif leiðbeinandi tilmæla HMS.

Áhættumiðað eftirlit, faggiltar skoðunarstofur og ábyrgðarskipting

Samkvæmt 30. gr. frumvarpsins er lagt til að mannvirki verði flokkuð eftir áhættu og að umfang leyfisveitinga og eftirlits taki mið af þeirri flokkun. Viðskiptaráð styður það fyrirkomulag enda eiga einfaldar og áhættulitlar framkvæmdir ekki að sæta sama eftirlitsþunga og umfangsmikil og flókin mannvirkjagerð. Ráðið leggur þó áherslu á að við nánari útfærslu áhættuflokka A, B og C í reglugerð verði viðmið skýr og fyrirsjáanleg, þannig að framkvæmdaraðilar geti auðveldlega áttað sig á þeim kröfum sem gilda um viðkomandi framkvæmdir.

Jafnframt telur Viðskiptaráð jákvætt það fyrirkomulag sem gert er ráð fyrir í 15. gr. frumvarpsins, sbr. fyrirhugaða 33. gr. laganna, að umfang ytra eftirlits taki meðal annars mið af reynslu og frammistöðu þeirra hönnuða og iðnmeistara sem að framkvæmd koma. Slík nálgun er til þess fallin að skapa hvata til vandaðra vinnubragða og umbuna góðri frammistöðu með minni eftirlitsþunga og lægri kostnaði. Samkvæmt ákvæðinu ber verkeiganda að greiða kostnað vegna eftirlitsins. Mikilvægt er að gjaldtaka verði hófleg og endurspegli raunverulegan kostnað, jafnframt því sem tryggt verði að þeir sem ekki hafa byggt upp eftirlitssögu sæti ekki óhóflegum kostnaði af þeim sökum einum.

Viðskiptaráð telur jafnframt brýnt að ábyrgðarskipting þeirra sem koma að mannvirkjagerð og eftirliti sé skýr. Áhættumiðað eftirlit felur eðli máls samkvæmt í sér að ekki eru allir verkþættir skoðaðir með sama hætti. Því þarf að liggja fyrir hvernig ábyrgð HMS eða skoðunarstofu verður háttað ef galli kemur fram í verkþætti sem ekki sætti skoðun vegna áhættumats eða fyrri frammistöðu hönnuða og iðnmeistara. Ráðið telur mikilvægt að afmörkun á umfangi og ábyrgð eftirlitsaðila komi skýrt fram í lögunum sjálfum en ekki einungis í greinargerð frumvarpsins, svo komið verði í veg fyrir réttaróvissu.

Viðskiptaráð ítrekar jafnframt fyrri afstöðu sína um að framkvæmd ytra eftirlits verði falin faggiltum skoðunarstofum, enda tryggir faggilding sjálfstætt mat á hæfni og óhæði eftirlitsaðila. Ráðið leggur í því sambandi áherslu á að nýta það faggildingarkerfi sem þegar er til staðar í stað þess að byggja upp samhliða kerfi innan HMS, sem gæti leitt til aukins tvíverknaðar og kostnaðar.

Skýr aðgreining bindandi reglna frá leiðbeinandi tilmælum HMS

Viðskiptaráð styður meginefni frumvarpsins um einföldun byggingarreglugerðar og aukið svigrúm til hagkvæmra lausna við mannvirkjagerð. Í fyrri umsögn ráðsins var þó varað við því að einföldun reglugerðarinnar leiddi einungis til þess að ítarlegar kröfur yrðu færðar yfir í leiðbeiningar, skoðunarlista eða annað útgefið efni stjórnvalda. Slík tilfærsla fæli ekki í sér raunverulega einföldun og gæti dregið úr gagnsæi og fyrirsjáanleika regluverksins.

Ráðið telur jafnframt brýnt að skýra réttaráhrif leiðbeinandi tilmæla HMS samkvæmt frumvarpinu. Í fyrirhugaðri 24. gr. laganna, sbr. 13. gr. frumvarpsins, eru frávik frá slíkum tilmælum talin upp samhliða brotum gegn lögum og reglugerðum sem tilefni til tilkynningar vegna mögulegrar beitingar réttar- eða þvingunarúrræða. Þótt tilkynning feli ekki sjálf í sér beitingu slíkra úrræða kann framsetning ákvæðisins að skapa óvissu um hvort tilmælunum sé ætlað sjálfstætt bindandi gildi. Þá kemur fram í athugasemdum við 4. gr. frumvarpsins að tilmælin geti orðið grundvöllur krafna HMS um úrbætur með vísan til laga um mannvirki eða byggingarreglugerðar.

Viðskiptaráð leggur áherslu á að skýr greinarmunur verði gerður á bindandi reglum og leiðbeinandi tilmælum. Leiðbeinandi tilmæli stjórnvalda geta verið höfð til hliðsjónar við túlkun og framkvæmd laga og reglugerða en geta ekki lagt skyldur á aðila með sjálfstæðum hætti. Frávik frá þeim geta því ekki ein og sér réttlætt kröfur um úrbætur eða beitingu þvingunarúrræða, heldur verða slíkar ákvarðanir að byggjast á fullnægjandi lagaheimild og sjálfstæðu mati á því hvort skilyrði hennar séu uppfyllt. Jafnframt þarf að tryggja að tilmælin útiloki ekki aðrar lausnir sem uppfylla bindandi kröfur. Að öðrum kosti er hætt við að ítarlegum kröfum verði í reynd viðhaldið í formi leiðbeinandi tilmæla og að markmið frumvarpsins um einfaldara og markmiðsdrifnara byggingarregluverk náist ekki.

Tengt efni

Einföldun byggingarreglugerðar þarf að skila sér í framkvæmd

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsdraga um einfaldara regluverk mannvirkjagerðar og áhættumiðað byggingareftirlit, enda er það forsenda aukins …
4. nóvember 2026

Einföldun byggingarreglugerðar þarf að skila sér í framkvæmd

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsdraga um einfaldara regluverk mannvirkjagerðar og áhættumiðað byggingareftirlit, enda er það forsenda aukins …
4. nóvember 2026

Ársreikningafrumvarp gæti aukið endurskoðunarskyldu

Viðskiptaráð styður fyrirhugaðar breytingar á ársreikningalögum sem miða að því að draga úr reglubyrði smærri fyrirtækja. Ráðið telur þó að ganga eigi …
2. október 2026

Útvistun eftirlits fylgi fækkun heilbrigðisnefnda

Viðskiptaráð telur frumvarp um fækkun heilbrigðisnefnda mikilvægt skref í átt að einfaldara og skilvirkara eftirliti. Þó gagnrýnir ráðið frávik frá …
20. apríl 2026

Fiskeldi fái svigrúm til að komast á legg

Viðskiptaráð fagnar því að stefnt sé að setningu heildstæðrar löggjafar um lagareldi. Ráðið telur mikilvægt að samræma regluverkið til að auka …
16. apríl 2026

Jákvæð skref í einföldun heilbrigðiseftirlits

Viðskiptaráð fagnar áformum um að einföldun og aukið samræmi og skilvirkni í heilbrigðiseftirliti. Framkvæmdin í dag felur í sér mikið óhagræði og …
18. febrúar 2026