Viðskiptaráð Íslands

Frumvarp um skammtímaleigu gengur gegn markmiðum sínum

Nýtt frumvarp, sem takmarkar skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis, gengur gegn markmiðum sínum. Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs. Þá varar ráðið við því að strangari reglur um skammtímaleigu ýti undir ólöglega starfsemi og auki réttaróvissu. Ráðið hefur sérstakar áhyggjur af tillögu frumvarpsins um að leyfi til gististarfsemi verði gerð tímabundin til fimm ára. Framboð húsnæðis ætti að ráðast af markaðsaðstæðum fremur en ríkisíhlutun.

Viðskiptaráð þakkar fyrir tækifærið til að koma á framfæri umsögn um ofangreint frumvarp. Ráðið hefur skilað umsögn um málið á fyrri stigum og vísar til hennar eftir því sem við á. [1]

Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að skammtímaleiga í þéttbýli verði afmörkuð við lögheimili einstaklings og eina aðra fasteign utan þéttbýlis. Þá er lagt til að þegar útgefin rekstrarleyfi innan þéttbýlis gildi til fimm ára i senn, en samkvæmt núgildandi lögum eru slík leyfi ótímabundin. Í þriðja lagi er lagt til að sýslumanni verði heimilt að óska eftir upplýsingum frá ríkisskattstjóra í tengslum við eftirlit sýslumanns með einstaka málum er varða skráningarskylda heimagistingu.

Í greinargerð er rakið að markmið frumvarpsins sé að auka framboð íbúðarhúsnæðis innan þéttbýlis með því að draga úr skammtímaleigu sem stunduð er án skráningar og tilskilinna leyfa, en samkvæmt greinargerð gera stjórnvöld ráð fyrir því að um 56% af skammtímaleigu sé án skráningar og tilskilinna leyfa.

Viðskiptaráð vill ítreka þá afstöðu sína að þvert gegn markmiðum frumvarpsins eru enn strangari boð og bönn en þau sem þegar eru á skammtímaleigu húsnæðis líkleg til að ýta undir að einstaklingar ráðstafi eignum sínum á skjön við lög. Ekki síst vegna verulega íþyngjandi skilyrða, bæði hvað varðar hvaða fasteignum er heimilt að ráðstafa en ekki síst vegna þess að fjárhæðartakmörk hafa haldist óbreytt frá ársbyrjun 2018. Framboð og eftirspurn á húsnæði ætti með réttu að þróast í gegnum frjálsan markað fremur en með miðstýrðum takmörkunum og íhlutunum af hálfu stjórnvalda.

Þá lýsir Viðskiptaráð sérstökum áhyggjum af 2. gr. frumvarpsins, þar sem lagt er til að rekstrarleyfi til gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis verði tímabundin til fimm ára í senn. Að mati ráðsins felur hún í sér verulega skerðingu á atvinnufrelsi og gengur gegn réttmætum væntingum leyfishafa.

Hætta er á því að staða þeirra aðila sem hafa kappkostað að fylgja settum reglum, sem frumvarpinu er ætlað að styðja við, verði veikari og réttaróvissa þeirra aukist. Frumvarpið er einnig til þess fallið að flækja leyfisveitingarmál og stjórnsýslu gistirekstrar heilt yfir. Þetta getur grafið undan vilja fólks til að fylgja reglum og ýtt undir frekari starfsemi á svörtum markaði.

Að endingu vill Viðskiptaráð leggja áherslu á að takmörkun á heimagistingu eða rekstrarleyfum mun einungis gera illt verra þegar kemur að skorti á húsnæði til langtímaleigu. Meginorsök hás húsnæðisverðs, sem leiðir til hás leiguverðs, eru inngrip stjórnvalda sem draga úr framboði á nýju húsnæði, líkt og Viðskiptaráð hefur bent á í úttekt sinni á húsnæðismarkaði. [2] Þá hafa nýlegar íhlutanir stjórnvalda á leigu­markaði dregið úr framboði húsnæðis til langtímaleigu. [3}

Stjórnvöld ættu að líta til þess að aflétta framangreindum kvöðum og inngripum í stað þess að þrengja að aðilum sem stunda löglega gisti­starfsemi. Ef hið opinbera vill stuðla að auknu framboði húsnæðis til langtímaleigu væri bæði árangursríkast og hagkvæmast að aflétta íþyngjandi kvöðum sem lagðar hafa verið á leigusala á síðustu árum og hafa dregið úr framboði leiguhúsnæðis.

Umsögnina í heild sinni má lesa hér.

Tilvísanir

1 Sjá umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (mars 2025). Slóð: https://vi.is/umsagnir/oliklegt-ad-frumvarp-studli-ad-auknu-frambodi

2 Sjá úttekt Viðskiptaráðs (apríl 2025): „Steypt í skakkt mót: áhrif húsnæðisstefnu stjórnvalda“. Slóð: https://vi.is/skodanir/steypt-i-skakkt-mot

3 Sjá umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (apríl 2025). Slóð: https://vi.is/umsagnir/ihlutun-a-leigumarkaði-dragi-ur-frambodi

Umfjöllun í fjölmiðlum

Tengt efni

Dregið úr stuðningi við nýsköpun

Nýir og hærri skattar eru lagðir til í bandorminum svokallaða, sem eru …
22. október 2024

Afnema ætti ríkiseinokun og auglýsingabann

Íslensk áfengislöggjöf mismunar innlendum fyrirtækjum samanborið við erlend …
15. október 2024

Missum ekki sjónar á hagsmunum neytenda

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að missa ekki sjónar á því að hagur neytenda …
10. október 2024