Viðskiptaráð Íslands

Varast þarf gullhúðun við innleiðingu SRD II

Viðskiptaráð og önnur samtök atvinnulífsins vara við því að gengið verði lengra en Evrópureglur krefjast við innleiðingu SRD-II. Lagt er til að undanþágur verði nýttar og íþyngjandi kröfur ekki rýmkaðar umfram lágmark. Þá eru gerðar athugasemdir við víðtækt gildissvið, lágt viðmið um mikilvæg viðskipti og óskýrt orðalag sem getur skapað réttaróvissu. Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn samtakanna um breytingar á félagaréttarlöggjöf.

Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SVÞ - samtök verslunar og þjónustu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samorka, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráð Íslands (hér eftir sameiginlega nefnd samtökin) hafa tekið til umsagnar ofangreint mál sem birt var í Samráðsgátt stjórnvalda 5. febrúar. Með frumvarpinu verða innleidd ákvæði tilskipunar (ESB) 2017/828, SRD II og framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1212.

Fulltrúar SA, SFF og Viðskiptaráðs áttu sæti í óformlegum starfshópi ráðuneytisins á meðan unnið var að gerð frumvarpsins og áttu jafnframt fund með ráðuneytinu í aðdraganda þess að frumvarpsdrögin voru birt á Samráðsgátt. Hægt er að fallast á að á frumstigum þessa máls hafi verið gerð gangskör að samráði, sem er til eftirbreytni og ber að fagna. Hafa verður þó í huga að hluta- og einkahlutafélagalöggjöfin er grundvallarlöggjöf, sem kveður á um sum mikilvægustu atriði sem varða þau félagaform sem langstærstur hluti íslensks atvinnulífs reiðir sig á. Í ljósi undirliggjandi hagsmuna telja samtökin því nauðsynlegt að stjórnvöld vandi til verka og fylgi fyrir fram ákvörðuðum starfsferlum þegar þau vinna að breytingum á íslenskri félagaréttarlöggjöf. Líta má til samráðsferlis mála í því samhengi, en mikilvægt er að formfestu gæti við samráð og við ákvörðun um hverja samráð sé viðhaft.

Við innleiðingu regluverks ESB leggja samtökin almenna áherslu á að ekki verði farið umfram lágmarkskröfur Evrópureglna, gildissvið íslenskra reglna verði ekki víðtækara en þeirra evrópsku, allar ívilnandi undanþágur verði nýttar og að allar sambærilegar kröfur sem fyrir eru í lögum eða reglugerðum verði afnumdar.

Lesa umsögnina í heild sinni hér: Umsögn SRD II

Tengt efni

Varað við of íþyngjandi innleiðingu SRD-II

Viðskiptaráð og önnur samtök atvinnulífsins vara við því að gengið verði lengra en Evrópureglur krefjast við innleiðingu á SRD-II. Lagt er til að …
20. maí 2026

Smærri félögum veittur rýmri frestur

Viðskiptaráð styður frumvarpið og hvetur til þess að það nái fram að ganga. Þá fagnar ráðið því að stærðarmörk fyrirtækja séu hækkuð í samræmi við …
9. apríl 2026

Forðast skal tvöfalda skattlagningu kolefnis

Viðskiptaráð, ásamt fleiri samtökum, hafa tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og …
4. apríl 2025

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til enn frekari afhúðunar

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Viðskiptaráð er fylgjandi frumvarpinu og hvetur …
20. mars 2025

Ný sjálfbærnitilskipun hefur áhrif á flestöll fyrirtæki

Ný tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærnireikningsskil mun hafa áhrif á flestöll fyrirtæki á Íslandi. Það er vegna nýrrar kröfu um að …
10. september 2024

Afhúðun á umhverfismati framkvæmda og áætlana

Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur lagt fram fyrsta frumvarpið sem felur í sér afhúðun. Nái frumvarpið fram að ganga mun það létta á …
17. september 2024