Viðskiptaráð styður frumvarp sem heimilar sveitarfélögum með yfir 100.000 íbúa að fækka kjörnum fulltrúum úr 23 í 15. Borgarfulltrúar í fullu starfi eru hlutfallslega fimmtánfalt fleiri í Reykjavík en í öðrum norrænum höfuðborgum. Ráðið hvetur jafnframt til þess að sveitarfélög fái sjálf að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 59. mál á 158. löggjafarþingi. Frumvarpið felur í sér að sveitarfélögum með fleiri en 100.000 íbúa verði heimilt að fækka kjörnum fulltrúum úr 23 í 15 og að hámarksfjöldi borgarfulltrúa verði færður niður í 23.
Viðskiptaráð er fylgjandi frumvarpinu. Breytingin sem frumvarpið felur í sér er í samræmi við áherslur ráðsins og er til þess fallin að einfalda stjórnsýslu sveitarfélaga, draga úr yfirbyggingu og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best í þjónustu við þá. Þá er það mat ráðsins að löggjafinn eigi ekki að leggja kvöð á sveitarfélög af þessari stærð til að hafa svo marga borgarfulltrúa. Ráðið vill í því sambandi vísa til umsagnar sinnar um frumvarp til breytinga á sveitarstjórnarlögum á 157. löggjafarþingi um það sem snýr að frumvarpi þessu.[1]
Ráðið hefur áður bent á að Reykjavíkurborg sker sig verulega úr í norrænum samanburði hvað varðar fjölda borgarfulltrúa í fullu starfi. Alls eru nú 23 borgarfulltrúar á fullum launum hjá Reykjavíkurborg og að auki átta varaborgarfulltrúar í 70% starfi. Til samanburðar eru að jafnaði aðeins átta borgarfulltrúar í fullu starfi í höfuðborgum annarra Norðurlanda, þrátt fyrir að íbúafjöldi þeirra sé að meðaltali fimmfalt meiri. Miðað við höfðatölu eru borgarfulltrúar í fullu starfi því fimmtánfalt fleiri í Reykjavík.[2]
Áhrif umfangsmikillar yfirbyggingar takmarkast þó ekki við beinan launakostnað kjörinna fulltrúa. Hún getur jafnframt aukið flækjustig stjórnsýslunnar, lengt boðleiðir, dreift ábyrgð og hægt á ákvarðanatöku, með tilheyrandi kostnaði fyrir íbúa og atvinnulíf. Þá hefur Viðskiptaráð bent á að stjórnsýslukostnaður Reykjavíkurborgar á hvern íbúa sé um 50% hærri en að meðaltali hjá fimm stærstu sveitarfélögum landsins, þrátt fyrir að borgin ætti að njóta stærðarhagkvæmni.
Frumvarpið er jákvætt skref í átt að einfaldara og hagkvæmara stjórnskipulagi sveitarfélaga. Ráðið telur þó tilefni til að ganga lengra og endurskoða almennt lögbundnar kvaðir um lágmarksfjölda sveitarstjórnarmanna. Í því sambandi ber að hafa í huga sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga, sem nýtur verndar samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar. Eðlilegt er að sveitarfélög hafi sem víðtækast svigrúm til að ákveða eigin stjórnskipulag, þar á meðal fjölda kjörinna fulltrúa, með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum og þörfum. Vísast í því sambandi til áskorunar borgarstjórnar Reykjavíkur sem samþykkt var í október síðastliðnum um að sveitarfélögum yrði heimilt að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf, á bilinu 5–31.[3] Vilji til aukins sjálfdæmis kemur því skýrt fram hjá þeim sem breytingin varðar.
Þá blasir við að önnur fjölmenn sveitarfélög muni á næstu árum þurfa að fjölga sveitarstjórnarmönnum vegna fjölgunar íbúa, þrátt fyrir að núverandi fyrirkomulag hafi reynst þeim fullnægjandi. Að mati Viðskiptaráðs er óþarft að lögbinda slíka fjölgun án tillits til aðstæðna í hverju sveitarfélagi. Löggjöfin ætti fremur að tryggja sveitarfélögum svigrúm til að haga stjórnskipulagi sínu með sem hagkvæmustum hætti, enda sé lýðræðisleg aðkoma íbúa tryggð.
Að framangreindu virtu styður Viðskiptaráð að frumvarpið nái fram að ganga og hvetur jafnframt til frekari einföldunar á stjórnsýslu sveitarfélaga, með það að markmiði að sem stærstur hluti skatttekna nýtist í beina þjónustu við íbúa fremur en yfirbyggingu.
1 Sjá umsögn Viðskiptaráðs (mars 2026) um 505. mál á 157. löggjafarþingi. Slóð: https://vi.is/umsagnir/einfalda-tharf-stjornsyslu-sveitarfelaga
2 Sjá grein Viðskiptaráðs (mars 2026) „Fremst í yfirbyggingu“. Slóð: https://vi.is/greinar/fremst-i-yfirbyggingu
3 Frétt á Vísi (október 2026) „Vill fækka borgarfulltrúum um átta“. Slóð: https://www.visir.is/g/20262945699d/vill-faekka-borgar-full-truum-um-atta