Viðskiptaráð Íslands

Íslensk útrás - London

Staðsetning: London

Verslunarráð Íslands í samráði við Bresk-íslenska verslunarráðið stendur fyrir ferð til London 7. - 8. apríl 2005.

Bakkavör, NOVATOR og Baugur heimsótt. Stutt seminar um útrás íslenskra fyrirtækja til Bretlands í sendiráði Íslands í Lundúnum.

Gist á glæsilegu og nýuppgerðu hóteli, The Cumberland. Nánari upplýsingar um hótelið hér. Verð fyrir flug, hótel, morgunverð, rútuferðir og fundi er 79.000.

Fólki gefst kostur á að dvelja í London yfir helgi og bætist þá aðeins við aukakostnaður vegna gistingar.

Einungis 30 sæti eru í boði og þarf að staðfesta þáttöku fyrir 21. janúar. Fulltrúar aðildarfyrirtækja VÍ og BRÍS ganga fyrir.

Athygli fótboltaunnenda er vakin á því að Eiður Smári og félagar hans í Chelsea spila á Stamford Bridge gegn Birmingham laugardaginn 9. apríl.

Nánari upplýsingar gefur Erla Ýr Kristjánsdóttir í síma 510 7100 eða á erla@vi.is

Tengt efni

Fræðsluferð fyrir útflytjendur til Bretlands

Nú í febrúar mun Útflutningsráð Íslands standa fyrir fræðsluferð fyrir nýja útflytjendur til Bretlands. Með ferðinni gefst útflytjendum tækifæri á að …
23. desember 2003

Fræðsluferð fyrir útflytjendur til Bretlands

Nú í febrúar mun Útflutningsráð Íslands standa fyrir fræðsluferð fyrir nýja útflytjendur til Bretlands. Með ferðinni gefst útflytjendum tækifæri á að …
23. desember 2003

Breskir fjárfestar og verslanir kynnast íslenskum heilsuvörum

Fulltrúar tíu íslenskra fyrirtækja sem framleiða heilsu- og snyrtivörur eru nú í London í ferð á vegum Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.
6. október 2022

Tölum um tilnefningarnefndir

Opinn morgunfundur IcelandSIF, Nasdaq Iceland, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs
21. mars 2023

BRÍS: Euromoney - The Iceland Conference

Bresk-íslenska viðskiptaráðið er einn af aðstandendum The Iceland Conference sem haldin er á vegum Euromoney. Ráðstefnan fer fram á The Waldorf Hilton …
12. apríl 2016

Hádegisverðarfundur með Geir H. Haarde í London

Þann 20. janúar nk. stendur Bresk-íslenska viðskiptaráðið fyrir hádegisverðarfundi með Geir H. Haarde, Utanríkisráðherra, í London. Icelandair og …
20. janúar 2006