Viðskiptaráð Íslands

AMÍS: Opinn fundur um niðurstöðu forsetakosninganna

Miðvikudaginn 9. nóvember kl. 8.30-10.00 fer fram opinn fundur um niðurstöðu forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Sérfræðingar og áhugamenn um bandarísk stjórnmál munu fara yfir úrslitin og ræða framtíðaráherslur í bandarískum stjórnmálum.

Þátttakendur eru:

Friðjón Friðjónsson, framkvæmdastjóri KOM. Friðjón er áhugamaður um kosningar og bandarísk stjórnmál. Hann hefur verið tíður gestur í útvarpi og sjónvarpi sem skýrandi vegna kosninga í Bandaríkjunum en hann bjó á Washington DC svæðinu frá 2007-2010.

Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Silja Bára kennir m.a. bandarísk stjórnmál og hefur skýrt frá þeim í fjölmiðlum frá því hún flutti heim til Íslands eftir rúmlega áratugar búsetu í Bandaríkjunum.

Fundarstjórn er í höndum Sigríðar Á. Andersen, alþingismanns.

Hvenær: Miðvikudaginn 9. nóvember kl. 8.30-10.00
Hvar: LOGOS, Efstaleiti 5
Fundarmál: Íslenska / enska ef þörf er á

Athugið að ókeypis er inn á fundinn en skráning fer fram hér

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands 2025

Morgunfundur um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 18. júní 2025.
18. júní 2025

Kosningafundur 2024

Kosningafundur Viðskiptaráðs verður haldinn í Hörpu miðvikudaginn 13. nóvember 2024. Fundurinn hefst kl. 08:30. Þar mun forystufólk …
13. nóvember 2024

Horfum til hagsældar: opinn kosningafundur með leiðtogum stjórnmálaflokka

Viðskiptaráð efnir til kosningafundar í Hörpu miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „Horfum til hagsældar.“ Þar munu leiðtogar …
28. október 2024

Tölum um tilnefningarnefndir

Opinn morgunfundur IcelandSIF, Nasdaq Iceland, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs
21. mars 2023

AMÍS: Fundur um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum

Amerísk-íslenska viðskiptaráðið og Háskólinn í Reykjavík bjóða til fundar um stöðuna í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Á fundinum gefst einstakt …
26. febrúar 2016

Opinn fundur: Icesave Já/Nei - áhrif á efnahagsþróun

Þriðjudaginn 5. apríl næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins fyrir opnum fundi um …
4. apríl 2011