Viðskiptaráð Íslands

Í síðasta sinn: greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda

Efnahags- og skattanefnd hefur lagt fram breytingar á lögum vegna greiðsludreifingar aðflutnings- og vörugjalda fyrir gjalddaganna 15. mars og 15. apríl. Málið hefur verið afgreitt sem lög og tekur því gildi í dag.

Í máli formanns nefndarinnar á Alþingi í gær kom fram að samstaða væri í nefndinni um að ekki yrði um frekari dreifingar gjalddaga að ræða og þá hefur fjármálaráðuneytið nú þegar lýst því yfir að ekki verði frekari dreifingar af þeirra hálfu. Má því gera ráð fyrir að sú greiðsludreifing sem ofangreint frumvarp leggur til verði sú síðasta og eftir það tímamark megi gera ráð fyrir hefðbundnu fyrirkomulagi greiðslu aðflutnings- og vörugjalda. Fyrirtæki hafa því tíma núna til að undirbúa að snúið verði aftur til fyrra horfs.

Viðskiptaráð fagnar þessari viðleitni efnahags- og skattanefndar til að létta undir með innflutningsaðilum enda hefur þetta úrræði skipt þau miklu. Það er von ráðsins að efnahagslegur bati muni eflast svo ekki verði þörf á frekari úrræðum í þessa átt.

Tengt efni:

Tengt efni

Í síðasta sinn: greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda

Efnahags- og skattanefnd hefur lagt fram
15. mars 2011

Umsögn um áform um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald

Umsögn Viðskiptaráðs um áform um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald (kaup og sala þjónustu á milli landa og …
28. febrúar 2024

Ekki frekari greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda

Á síðustu misserum hafa stjórnvöld boðið upp á greiðsludreifingu aðflutnings- og vörugjalda sem úrræði til aðstoðar fyrirtækjum í lausafjárvandræðum. …
11. mars 2011

Innflutningstollar: Umfang og áhrif

Viðskiptaráð hefur birt kynningu með yfirliti yfir umfang og efnahagsleg áhrif innflutningstolla hérlendis. Kynningin var lögð fyrir efnahags- og …
8. maí 2015

Greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda framlengd út árið

Á þriðjudaginn síðasta samþykkti Alþingi
24. maí 2011

Neysluskattar komnir á síðasta söludag

Fjölmargar breytingar á skattkerfinu hafa átt sér stað á undanförnum árum og frekari tekjuöflun er áætluð í fjárlögum næsta árs. Á meðan deilt hefur …
13. desember 2012