Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaþing 2013: Fleiri atvinnugreinar þarf á stall sjávarútvegs

Hreggviður Jónsson formaður Viðskiptaráðs sagði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, okkur Íslendinga standa í svipuðum sporum og árin fyrir Þjóðarsáttina. Umrótið í efnahagsmálum hefur staðið of lengi, framtíðarsýn um uppbyggingu er óljós og væntingar um bætt lífskjör einnig. Sú samstaða sem birtist í Þjóðarsáttinni er ekki til staðar að mati Hreggviðs. Ágreiningur um hugmyndafræði hefur ráðið um of á kostnað hagkvæmni, sem þó er undirstaða bættra lífskjara, nú og til framtíðar.

Þá vék Hreggviður að sjávarútveginum, sem er ein skilvirkasta atvinnugrein Íslands. Sagði hann það viðurkennt að íslenskur sjávarútvegur og skipulag hans væri ljósið í myrkrinu varðandi hagkvæmni í íslensku atvinnulífi og ætti því að vera kappsmál að eiga fleiri atvinnugreinar á þeim stalli. Því væri óskiljanlegt að opinberar aðgerðir síðustu missera hafi miðað að því að draga úr hagkvæmni og arðsemi í íslenskum sjávarútvegi á þann hátt að það komi niður lífskjörum allrar þjóðarinnar. Markmiðið hlyti að vera að efla lífskjör, en það væri aðeins gert með því að búa hér til hagkvæm skilyrði fyrir atvinnulífið.

Ræða Hreggviðs er aðgengileg hér.

Tengt efni

Viðskiptaþing 2013: Fleiri atvinnugreinar þarf á stall sjávarútvegs

Hreggviður Jónsson formaður Viðskiptaráðs sagði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, okkur Íslendinga standa í svipuðum sporum og árin fyrir …
13. febrúar 2013

Viðskiptaþing 2013: Nú þarf að láta verkin tala

Á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, fjallaði Hreggviður Jónsson formaður ráðsins um nýstofnaðan Samráðsvettvang um aukna hagsæld á Íslandi. Að …
13. febrúar 2013

Viðskiptaþing 2012: Úttekt á hagvaxtar- og lífskjarahorfum á Íslandi

Á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, ræddi Hreggviður Jónsson, nýkjörinn formaður Viðskiptaráðs, um mikilvægi áætlunar fyrir Ísland um …
15. febrúar 2012

Viðskiptaþing 2012: Úttekt á hagvaxtar- og lífskjarahorfum á Íslandi

Á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, ræddi Hreggviður Jónsson, nýkjörinn formaður Viðskiptaráðs, um mikilvægi áætlunar fyrir Ísland um …

Viðskiptaþing 2011 - Tökumst á við tækifærin

Á síðustu þremur Viðskiptaþingum hefur Viðskiptaráð fjallað um rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni hér á landi, endurreisnarstarf og áherslur til …
21. janúar 2011

Komandi lausnir munu ákvarða samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins

Í ræðu sinni á Viðskiptaþingi kom Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, m.a. inn á það að íslenskt atvinnulíf væri í viðkvæmri stöðu um þessar …
17. febrúar 2010