Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaþing 2009 - skráningu lýkur í dag

Hátt í 350 manns eru skráðir á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem haldið verður á morgun á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Endurreisn hagkerfisins - horft til framtíðar“. Skráningu á þingið líkur í dag kl. 18:00.

Eins og komið hefur fram þá verða erindi flutt af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, Erlendi Hjaltasyni formanni Viðskiptaráðs og Dr. Pedro Videla prófessor í hagfræði við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona.

Að loknum framsögum verða umræður um áherslur stjórnmálaflokkana til framtíðar þar sem  fulltrúar allra flokka á Alþingi taka þátt. Þar munu þeir verða inntir eftir svörum við spurningum er varða helstu hagsmunamál íslenskra fyrirtækja og heimila þegar horft er til framtíðar. Þessar spurningar eru:
1. Hver eiga umsvif hins opinbera að vera og umfang þátttöku í atvinnurekstri?
2. Hvað á að gera til að koma á jafnvægi í fjármálum hins opinbera?
3. Hvaða stefnu ætti að taka í utanríkis- og peningamálum til að koma á varanlegum efnahagslegum stöðugleika?

Þar á eftir verða pallborðsumræður um viðbrögð og viðhorf viðskiptalífsins, en í þeim umræðum taka þátt þau Jón Sigurðsson forstjóri Össurar, Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar Capital, Svava Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík, Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls og Vilhjálmur Þorsteinsson stjórnarformaður CCP. Umræðum stjórnar Bogi Ágústsson.

Viðskiptaráð mun gefa út skýrslu í tengslum við Viðskipaþingið og ber hún heitið „Endurreisn hagkerfisins - horft til framtíðar“. Gestir fá eintak af skýrslunni á þinginu.

Upplýsingar um dagskrá þingsins og skráningu má nálgast hér. Skráning fer einnig fram í síma 510-7100.

Tengt efni

Viðskiptaþing 2009 - skráningu lýkur í dag

Hátt í 350 manns eru skráðir á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem haldið verður á morgun á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni …
11. mars 2009

Góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2009

Nú þegar hafa tæplega 300 manns skráð sig á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands sem verður haldið núna á fimmtudaginn (12. mars) á Reykjavík …
10. mars 2009

Pedro Videla með erindi á Viðskiptaþingi 2009

Dr. Pedro Videlo, prófessor í hagfræði við IESE Business School í Barcelona, sem nýlega var valinn besti viðskiptaháskólinn í Evrópu af …
10. mars 2009

Góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2009

Á fjórða hundrað manns voru viðstaddir árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, sem haldið var í gær á Reykjavík Hilton Nordica. Yfirskrift …
13. mars 2009

Góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2009

Á fjórða hundrað manns voru viðstaddir árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, sem haldið var í gær á Reykjavík Hilton Nordica. Yfirskrift …
13. mars 2009

Viðskiptaþing 2010: Á fjórða hundrað manns skráðir

Á fjórða hundrað manns eru nú þegar skráðir á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem haldið verður á morgun á Hilton Reykjavík Nordica undir …
16. febrúar 2010