Viðskiptaráð Íslands

Nýir hagfræðingar hjá Viðskiptaráði

Elísa Arna Hilmarsdóttir og Gunnar Úlfarsson skipa nýtt hagfræðiteymi Viðskiptaráðs

Elísa Arna Hilmarsdóttir og Gunnar Úlfarsson hafa verið ráðin hagfræðingar hjá Viðskiptaráði. Saman munu þau skipa hagfræðiteymi ráðsins sem meðal annars hefur umsjón með málefnastarfi VÍ, sinnir greiningum, skrifum og útgáfu.

Elísa Arna er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur undanfarið starfað sem sérfræðingur hjá VÍ en áður var hún hagfræðingur á hagfræði- og peningastefnusviði Seðlabanka Íslands. Þá sinnti hún sumarstörfum fyrir SL lífeyrissjóð og Arion banka auk dæmatíma- og aðstoðarkennslu við Háskóla Íslands.

Gunnar er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði og fjármálum frá St. Andrews háskólanum í Skotlandi. Undanfarið ár hefur hann unnið hjá RR ráðgjöf auk þess að sinna stundakennslu við HÍ. Þá hefur Gunnar einnig unnið hjá Samkeppniseftirlitinu.

Tengt efni

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. …
13. september 2024

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið …
26. ágúst 2024

Sumaropnun og nýjar verðskrár

Opnunartími skrifstofu Viðskiptaráðs verður styttri frá 22. júlí til 5. ágúst, …
12. júlí 2024