Viðskiptaráð Íslands

Garðar Víðir nýr formaður Gerðardóms VÍ

Ný stjórn Gerðardóms Viðskiptaráðs tók við störfum í maí síðastliðnum. Garðar Víðir Gunnarsson er nýr formaður dómsins og Finnur Magnússon hefur tekið sæti í stjórn.

Garðar Víðir Gunnarsson er lögmaður og eigandi á LEX lögmannsstofu.

Tenglar

Garðar Víðir Gunnarsson er nýr formaður Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands (GVÍ). Hann tekur við formennsku af Mörtu Guðrúnu Blöndal sem jafnframt lét af stjórnarsetu.

Garðar er lögmaður og eigandi á LEX lögmannsstofu. Sérsvið Garðars Víðis eru skatta- og félagaréttur, kaup og sala fyrirtækja og erlendar fjárfestingar. Garðar Víðir er auk þess sérfræðingur á sviði gerðardómsréttar en hann lauk meistaragráðu (LL.M.) í alþjóðlegum gerðardómsrétti frá Stokkhólmsháskóla árið 2008, hefur reynslu af málflutningi fyrir alþjóðlegum gerðardómum og átti um árabil sæti í International Court of Arbitration hjá Alþjóðaviðskiptaráðinu í París.

Þá hefur Finnur Magnússon tekið sæti í stjórn dómsins og gegnir varaformennsku. Finnur er lögmaður með málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti og eigandi hjá Juris lögmannsstofu. Hann lauk doktorsnámi frá Háskólanum í Vín árið 2013. Finnur hefur víðtæka reynslu í ráðgjöf íslenskum og erlendum aðilum varðandi fjármálalöggjöf, félagarétt, EES-rétt og alþjóðlega fjárfestingarsamninga. Hann hefur jafnframt tekið þátt í málflutningi fyrir alþjóðlegum gerðardómum og veitt ráðgjöf fjármálastofnunum og ríkisstjórnum.

Í stjórn Gerðardóms Viðskiptaráðs sitja eftirfarandi:

  • Garðar Víðir Gunnarsson, formaður - lögmaður og eigandi á Lex lögmannsstofu
  • Agla Eir Vilhjálmsdóttir - lögmaður hjá BBA//Fjeldco
  • Finnur Magnússon - lögmaður og eigandi Juris lögmannsstofu
  • Halla Björgvinsdóttir - yfirlögfræðingur Embla Medical
  • Haraldur I. Birgisson - lögmaður og meðeigandi hjá Deloitte Legal

Lísbet Sigurðardóttir er nýr framkvæmdastjóri Gerðardóms VÍ og tekur hún við stöðunni af Maríu Guðjónsdóttur.

Gerðardómur Viðskiptaráðs er sjálfstæð gerðardómsstofnun sem veitir aðilum úrlausn ágreiningsmála með skjótari og öruggari hætti en hið almenna dómskeri. Dómurinn er hlutlaus aðili sem leggur hlutlægt mat á úrlausnarefni en málum á borði dómsins hefur farið fjölgandi að undanförnum árum. Gerðardómurinn hefur verið rekinn, með hléum, af Viðskiptaráði frá árinu 1921.

Tengt efni

Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2026-2028 voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs, sem fram fór í dag. Andri Þór Guðmundsson var …
10. febrúar 2026

Lísbet tekur við sem lögfræðingur Viðskiptaráðs

Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs. Hún mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf, gerð skýrslna og umsagna auk þess að halda …
11. september 2025

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. september. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, tók …
13. september 2024

Eiríkur Elís nýr formaður Gerðardóms Viðskiptaráðs

Garðar Víðir Gunnarsson og Haraldur I. Birgisson hafa tekið sæti í stjórn Gerðardóms Viðskiptaráðs og Eiríkur Elís Þorláksson er nýr formaður dómsins.
16. janúar 2023

Andri nýr formaður Viðskiptaráðs – Ný stjórn kjörin

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fór fram í dag. Þar var kunngerð niðurstaða úr kosningu í embætti formanns og í stjórn.
7. febrúar 2024

María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María kemur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og mun hefja störf hjá Viðskiptaráði í ágúst
12. maí 2023