Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð leitar að hagfræðingi á málefnasvið

Viðskiptaráð leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í málefnateymi ráðsins. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér greiningar, skrif og miðlun efnis sem miðar að því að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja og hafa jákvæð áhrif á opinbera umræðu um efnahags- og þjóðmál.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skrif greina, úttekta, álita, skýrslna og greininga
  • Gagnasöfnun og rannsóknavinna greiningarvinna til að undirbyggja útgáfur
  • Gerð kynninga, miðlun og framkoma í fjölmiðlum og/eða á viðburðum
  • Þátttaka í stefnumótun ráðsins og öðru innra starfi
  • Önnur tilfallandi skrifstofustörf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða skyldum öðrum greinum
  • Áhugi á efnahags- og þjóðmálum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og aðlögunarfærni
  • Sterk greiningarhæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Framúrskarandi færni í íslensku og góð færni í ensku, bæði í ræðu og riti
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sterkur samstarfsvilji

Um Viðskiptaráð

Viðskiptaráð Íslands eru frjáls félagasamtök þeirra sem vilja efla íslenskt atvinnulíf og skapa þannig forsendur til framfara og bættra lífskjara. Við bjóðum upp á lifandi starfsumhverfi þar sem skapandi hugsun, sjálfstæði og samvinna skipta lykilmáli. Frekari upplýsingar um ráðið má finna á vi.is.

Nánari upplýsingar

Tekið er við umsóknum í gegnum Alfreð til og með 7. janúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, á netfanginu bjorn@vi.is eða í síma 510-7100.

Tengt efni

Sumarstarf á málefnasviði

Viðskiptaráð leitar að metnaðarfullum einstaklingi í sumarstarf á málefnasviði. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem miða að því að bæta …
25. apríl 2025

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi á málefnasviði

Viðskiptaráð óskar eftir metnaðarfullum lögfræðingi til starfa á málefnasviði. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni sem miða að því að …
17. desember 2024

Viðskiptaráð leitar að framkvæmdastjóra

Viðskiptaráð Íslands er heildarsamtök fyrirtækja, félaga og einstaklinga í íslensku atvinnulífi.
22. janúar 2024

Viðskiptaráð leitar að hagfræðingi

Starf hagfræðings Viðskiptaráðs er laust til umsóknar.
18. nóvember 2021

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi

Starf lögfræðings Viðskiptaráðs er laust til umsóknar
4. mars 2023