Viðskiptaráð Íslands

Sumarstarf á málefnasviði

Viðskiptaráð leitar að metnaðarfullum einstaklingi í sumarstarf á málefnasviði. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem miða að því að bæta rekstrarumhverfi íslensks atvinnulífs, með áherslu á skrif og greiningar. Háskólanemar í hagfræði og lögfræði eru sérstaklega hvattir til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skrif greina, úttekta, álita, skýrslna og greininga
  • Gagnasöfnun og rannsóknavinna til að styðja við útgáfur
  • Þátttaka í stefnumótun ráðsins og öðru innra starfi
  • Önnur tilfallandi skrifstofustörf


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Áhugi á efnahags- og þjóðmálum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og aðlögunarfærni
  • Sterk greiningarhæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Framúrskarandi færni í íslensku og góð færni í ensku, bæði í ræðu og riti
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sterkur samstarfsvilji

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2025. Sótt er um starfið á alfred.is

Nánari upplýsingar veitir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, í síma 510-7100 eða með tölvupósti á bjorn@vi.is.

Tengt efni

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. …
13. september 2024

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið …
26. ágúst 2024

Sumaropnun og nýjar verðskrár

Opnunartími skrifstofu Viðskiptaráðs verður styttri frá 22. júlí til 5. ágúst, …
12. júlí 2024