Viðskiptaráð Íslands

Metfjöldi umsókna um námsstyrki

Umsóknarfrestur um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ) er nú liðinn. 180 umsóknir bárust frá íslenskum námsmönnum í framhaldsnámi í 18 löndum víðsvegar um heiminn. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist frá því styrkveitingar hófust.

Valnefnd Námsstyrkjasjóðs MVÍ mun nú fara yfir umsóknirnar og niðurstaða mun liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Í valnefndinni sitja dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, dr. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands.

Námsstyrkirnir verða veittir á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica þann 11. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um þingið má nálgast hér.

Viðskiptaráð þakkar umsækjendum fyrir sýndan áhuga og bendir á að frekari upplýsingar um námsstyrki Menntasjóðsins má finna hér.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá kynningu á þeim námsmönnum sem hlutu námsstyrki árið 2015.

Tengt efni

Þessi koma fram á Viðskiptaþingi 2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Magnús Scheving, Birna Ósk Einarsdóttir, …
23. janúar 2026

Verðbólgan heimatilbúinn vandi

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var gestur í …
20. janúar 2026

Einfalda megi skattkerfið

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fullyrti að einfalda …
16. janúar 2026