Viðskiptaráð Íslands

Yfir 70 umsóknir um námsstyrki

Umsóknarfrestur um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ) er nú liðinn. Rúmlega 70 umsóknir bárust frá íslenskum námsmönnum í framhaldsnámi í 12 löndum víðsvegar um heiminn. 

Valnefnd Námsstyrkjasjóðs MVÍ mun nú fara yfir umsóknirnar og niðurstaða mun liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Í valnefndinni sitja dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, dr. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands.

Námsstyrkirnir verða veittir á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica þann 12. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um þingið má nálgast hér

Viðskiptaráð þakkar umsækjendum fyrir sýndan áhuga og bendir á að frekari upplýsingar um námsstyrki Menntasjóðsins má finna hér.

Tengt efni

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2026.
5. janúar 2026

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.
18. desember 2024

Umsóknir um námsstyrki aldrei fleiri

Umsóknarfrestur um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ) er nú liðinn. Umsóknir um námsstyrki hafa aldrei verið fleiri en 198 umsóknir …
10. janúar 2017

Metfjöldi umsókna um námsstyrki

Umsóknarfrestur um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ) er nú liðinn. 180 umsóknir bárust frá íslenskum námsmönnum í framhaldsnámi í …
6. janúar 2016

​Yfir 100 umsóknir um styrki úr Rannsóknasjóði

Umsóknarfrestur um styrki úr nýjum Rannsóknasjóði Viðskiptaráðs Íslands er nú liðinn. Alls bárust 127 styrkumsóknir frá fjölbreyttum hópi umsækjenda. …
19. ágúst 2015

Viðskiptaþing: Agnes, Ásbjörg, Eiríkur og Róbert hljóta námsstyrki Menntasjóðs Viðskiptaráðs

Á árlegu Viðskiptaþingi voru veittir námsstyrkir úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands. Ríflega 180 umsóknir bárust frá íslenskum námsmönnum í …
11. febrúar 2016