Viðskiptaráð Íslands

Samþykktum endurgreiðslum hjá Rannís fækkar verulega milli ára

Rannís hefur ekki samþykkt færri umsóknir um endurgreiðslur til fyrirtækja vegna rannsókna og þróunar í áratug en á árinu 2024 auk þess sem hlutfall samþykktra umsókna hríðféll milli ára.

Samþykktar umsóknir fyrirtækja til Rannís um endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar hafa hríðfallið milli ára en aðeins 61% umsókna hlutu samþykkt vegna verkefna fyrir árið 2024. Samþykktarhlutfall féll um 21 prósentustig milli ára (mynd 1) en samhliða hafa útgjöld fyrirtækja vegna rannsókna og þróunar dregist saman úr 1,99% af VLF árið 2023 í 1,77% árið 2024.[1]

Þar sem hvergi eru aðgengilegar upplýsingar um stöðu umsókna hjá Rannís með opinberum hætti beindi Viðskiptaráð fyrirspurnum til stofnunarinnar varðandi fjölda umsókna og hlutfall samþykktra umsókna um endurgreiðslu verkefna vegna rannsókna og þróunar samanborið við undanfarin 10 ár. Ekki reyndist unnt að veita upplýsingar fyrir árið 2025 þar sem enn er unnið að afgreiðslu umsókna fyrir það ár.

Viðskiptaráð sendi einnig fyrirspurn þar sem óskað var eftir skýringum á því hvers vegna hlutfallið lækkar milli áranna 2023-2024 en svör hafa ekki borist að svo stöddu. Gögn fengin frá Rannís má nálgast hér að neðan.

Ár Fjöldi Samþykkt Hlutfall
201531326886%
201632228689%
201739036393%
201844437284%
201947540485%
202055150592%
202158553191%
202261553587%
202366454282%
202461337161%

Heimildir

[1] Hagstofa Íslands. (2026). Minni útgjöld til rannsókna- og þrónunarstarfs hjá fyrirtækjum. Slóð: https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/visindi-og-taekni/utgjold-til-rannsokna-og-throunarstarfs-2024/

Tengt efni

Viðskiptaráð styrkir þrjá afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Arnar Ágúst Kristjánsson, Hildur Þóra Hákonardóttir og Jón Valur Björnsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.500.000 kr.
3. mars 2026

Árni og Hildur nýir heiðursfélagar Viðskiptaráðs

Á Viðskiptaþingi voru útnefndir tveir nýir heiðursfélagar Viðskiptaráðs, þau Árni Árnason og Hildur Petersen. Þann heiður fá þeir sem hafa lagt …
17. febrúar 2026

Lestu sérblað Viðskiptaþings

Í tengslum við Viðskiptaþing gáfum við út sérblað í samvinnu við Viðskiptablaðið. Blaðið er alls 32 síður en þar er að finna áhugaverð viðtöl og …
17. febrúar 2026

Ljósmyndir frá Viðskiptaþingi 2026

Viðskiptaþing fór fram í Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 12. febrúar síðastliðinn. Við höfum nú birt fjölmargar skemmtilegar myndir frá þinginu.
13. febrúar 2026

Upptaka frá Viðskiptaþingi nú aðgengileg

Viðskiptaþing 2025 fór fram þann 12. febrúar í Borgarleikhúsinu. Upptaka frá þinginu er nú aðgengileg, þar sem hægt er að sjá erindi allra fyrirlesara …
13. febrúar 2026

Myndband: Sjáðu stemminguna á Viðskiptaþingi 2026

Yfir 500 gestir sóttu Viðskiptaþing í ár sem fram fór í Borgarleikhúsinu þann 12. febrúar. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá stemninguna í …
13. febrúar 2026