Viðskiptaráð Íslands

Tryggðu þér miða á Viðskiptaþing 2022

Miðasala er hafin á Viðskiptaþing 2022 sem fer fram föstudaginn 20. maí á Hilton Reykjavík Nordica.

Eftir ríflega tveggja ára bið er komið að Viðskiptaþingi sem haldið verður á Hilton Reykjavik Nordica, föstudaginn 20. maí. Húsið verður opnað kl. 13:00 og dagskrá hefst kl. 13:30 en miðasala á þingið er hafin á tix.is.

Á þinginu verður sjónum beint að vinnumarkaðnum, vinnustöðum og þeim miklu breytingum sem virðast vera að eiga sér stað. Þessi áhersla er ekki úr lausu lofti gripin en kannanir McKinsey og fleiri benda til þess að mun fleiri hugsi sér til hreyfings en áður hefur sést, hvort sem litið er til Evrópu eða Bandaríkjanna. Á sama tíma telja yfir 40% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum hér á landi að skortur verði á vinnuafli á næstunni. Allt þetta og meira til felur í sér ýmsar áskoranir en um leið fjölmörg tækifæri sé vel haldið á spöðunum.

Viðskiptaþing mun horfa til vinnustaðanna sjálfra, starfsfólksins, starfsmannaveltunnar og viðhorfs stjórnenda. Þurfum við að nálgast mannauðsmál á nýjan hátt? Hefur kannski aldrei verið mikilvægara að það sé gaman í vinnunni?

Dagskrá þingsins

Aðalfyrirlesari þingsins verður Dr. Alan Watkins, eigandi ráðgjafafyrirtækisins Complete Coherence. Um allan heim starfar fjöldi ráðgjafa eftir aðferðafræði Watkins en hann er læknir og sérfræðingur í taugavísindum sem yfirgaf heilbrigðisgeirann fyrir 25 árum og gerðist stjórnendaþjálfari. Hann hefur þjálfað leiðtoga í fyrirtækjum, stjórnmálamenn úr öllu litrófi stjórnmálanna, sem og afreksíþróttafólk. Meðal viðskiptavina hans eru Unilever, Reuters, Deloitte, KPMG, Boots, Santander og Virgin Media, svo nokkur stórfyrirtæki séu nefnd.

Móralskur leiðtogi Gleðipinna, Pétur Jóhann Sigfússon, mun kynna sín störf við að stuðla að góðum vinnustaðamóral. Þá fjallar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, um samspil atvinnulífs og menntakerfis og hvernig aðferðir atvinnulífsins nýtast við að byggja upp nýtt ráðuneyti.

Venju samkvæmt munu formaður Viðskiptaráðs og forsætisráðherra flytja ávörp. Að dagskrá lokinni (um kl. 16) tekur svo við kokteill sem beðið hefur verið eftir frá því fyrir heimsfaraldur!

Túlkun

Að vanda verður þingið túlkað á ensku fyrir þá gesti sem þess óska. Miðahafar sem óska eftir túlkun eru beðnir um að senda póst þess efnis á vi@vi.is.

Miðaverð

  • Almennt miðaverð: 27.400 kr.
  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs (ef 1-2 gestir): 18.900 kr.
  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs (ef 3+ gestir): 16.900 kr.

Smelltu hér til að kaupa miða á Viðskiptaþing 2022.

Sjáumst á Viðskiptaþingi 2022!

Tengt efni

Viðskiptaþing í dag

Viðskiptaþing 2026 fer fram í Borgarleikhúsinu í dag, 12. febrúar. Húsið opnar 12:30 og dagskrá byrjar klukkan 13:00. Dagskrá lýkur um klukkan 16:30 …
12. febrúar 2026

Viðskiptaþing 2026

Viðskiptaþing 2026 fer fram 12. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
12. febrúar 2026

Uppselt á Viðskiptaþing 2026

Uppselt er á Viðskiptaþing 2026 sem fer fram 12. febrúar næstkomandi. Hægt er að skrá sig á biðlista eftir miðum með því að senda tölvupóst á …
10. febrúar 2026

Þessi koma fram á Viðskiptaþingi 2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Magnús Scheving, Birna Ósk Einarsdóttir, Heiðar Guðjónsson og Friðrik Sophusson eru á meðal þátttakenda í dagskrá …
23. janúar 2026

Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
13. febrúar 2025

Skráning hafin á Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
17. janúar 2025