Viðskiptaráð Íslands

Uppselt á Viðskiptaþing 2026

Uppselt er á Viðskiptaþing 2026 sem fer fram 12. febrúar næstkomandi. Hægt er að skrá sig á biðlista eftir miðum með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@vi.is.

Uppselt er á Viðskiptaþing 2026 sem fer fram 12. febrúar næstkomandi. Hægt er að skrá sig á biðlista eftir miðum með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@vi.is.

Yfirskriftin í ár er Áttaviti fyrir Ísland. Sjónum verður beint að því hvernig við ræktum menningu, viðhorf og gildi sem leggja grunninn að langtímaárangri. Rætt verður hvernig sameiginlegur „áttaviti“ getur vísað veginn að skýrri framtíðarsýn og farsæld sem byggir á styrkleikum þjóðarinnar.

Meðal þátttakenda í dagskrá eru:

  • Halla Tómasdóttir: Forseti Íslands
  • Magnús Scheving: Athafnamaður, rithöfundur og höfundur Latabæjar
  • Birna Ósk Einarsdóttir: Forstjóri Húsasmiðjunnar og fyrrverandi Chief Commercial Officer hjá APM Terminals
  • Heiðar Guðjónsson: Hagfræðingur, fjárfestir og stjórnarformaður Íslandsbanka
  • Friðrik Sophusson: Fyrrverandi fjármálaráðherra og forstjóri Landsvirkjunar

Auk þeirra taka þátt Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, Ásta Fjeldsted, varaformaður, og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri ráðsins. Fundarstjóri er Ólöf Skaftadóttir.

Tengt efni

Viðskiptaþing 2026

Viðskiptaþing 2026 fer fram 12. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
12. febrúar 2026

Viðskiptaþing í dag

Viðskiptaþing 2026 fer fram í Borgarleikhúsinu í dag, 12. febrúar. Húsið opnar 12:30 og dagskrá byrjar klukkan 13:00. Dagskrá lýkur um klukkan 16:30 …
12. febrúar 2026

Þessi koma fram á Viðskiptaþingi 2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Magnús Scheving, Birna Ósk Einarsdóttir, Heiðar Guðjónsson og Friðrik Sophusson eru á meðal þátttakenda í dagskrá …
23. janúar 2026

Fullt hús og frábær stemning á Viðskiptaþingi

Viðskiptaþing 2026 fór fram fimmtudaginn 12. febrúar undir yfirskriftinni „Áttaviti fyrir Ísland.“ Þar var fjallað um hvernig menning, viðhorf og …
13. febrúar 2026

Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
13. febrúar 2025

Skráning hafin á Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
17. janúar 2025