Viðskiptaráð Íslands

Fullt hús og frábær stemning á Viðskiptaþingi

Viðskiptaþing 2026 fór fram fimmtudaginn 12. febrúar undir yfirskriftinni „Áttaviti fyrir Ísland.“ Þar var fjallað um hvernig menning, viðhorf og gildi leggja grunninn að langtímaárangri Íslands. Viðskiptaráð þakkar þátttakendum í dagskrá og gestum innilega fyrir komuna.

Þingið hófst á erindi frá Birni Brynjúlfi Björnssyni, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, þar sem hann fór yfir mikilvægi þess að Ísland mótaði sér stefnu, áttavita, sem tryggir að við höldum áfram að sækja fram og stöndum í stafni meðal þjóða. Hann sagði að vísbendingar væru um dæmigerða óheillaþróun þar sem góðir tímar búi til værukærð, værukærð leiði til stöðnunar og stöðnun leiði að endingu til slæmra tíma. Í því samhengi nefndi Björn straumhvörf í alþjóðamálum og að Evrópa væri orðin heimsmeistari í sjálfsmörkum.

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Því næst hélt Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar og fyrrverandi CCO hjá APM Terminals, erindi um eigin reynslu af íslensku hugarfari sem styrkleika í alþjóðlegu atvinnulífi. Þar nefndi hún að hugrekki, mannleg nálgun og seigla væru okkar helstu eiginleikar og hvernig traust er lykilinnviður í viðskiptum.

Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar.

Þá stýrði Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, samtali við Heiðar Guðjónsson, hagfræðing og fjárfesti, og Friðrik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherra og forstjóra Landsvirkjunar. Þar ræddu þau um áttavita fortíðar og framtíðar og hvernig megi skapa jarðveg fyrir umbætur í rekstri hins opinbera samhliða því að gefa einkamarkaði aukið svigrúm til að vaxa.

Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, Friðrik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherra og forstjóri Landsvirkjunar og Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi.

Að loknu hléi hélt Magnús Scheving, athafnamaður og frumkvöðull, líflegt erindi um forystu með frumkvöðlahugsun að leiðarljósi, tæknibyltinguna sem fleygir fram nú sem aldrei fyrr með tilkomu gervigreindar og mikilvægi skapandi hugarfars.

Magnús Scheving, athafnamaður og frumkvöðull.

Þá steig Andri Þór Guðmundsson formaður Viðskiptaráðs á svið og kynnti tvo nýja heiðursfélaga Viðskiptaráðs, þau Árna Árnason og Hildi Petersen. Að því loknu bauð hann forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, velkomna á svið og áttu þau áhugavert samtal um erindi dagsins, ræddu um stöðu íslensks atvinnulífs og heimsmyndina eins og hún blasir við í dag. Halla nefndi þörfina á samtali milli ólíkra aðila til þess að finna megi farsæla niðurstöðu milli mismunandi sjónarmiða.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs.
Fundarstjórn var í góðum höndum Ólafar Skaftadóttur.

Að erindum loknum var skálað fyrir vel heppnuðu þingi undir lifandi tónlist.

Viðskiptaráð vill nota tækifærið og þakka sérstaklega þeim sem tóku þátt í dagskrá á þinginu. Við viljum jafnframt þakka þeim sem sáu sér fært að mæta og hlýða á það sem fram fór á þinginu.

Tengt efni

Takk Austurland

Viðskiptaráð hélt austur og heimsótti fjölda fyrirtækja um allt Austurland í tveggja daga ferð. Fjórir starfsmenn ráðsins fóru austur og heimsóttu …
16. apríl 2026

Atvinnulífið á Austurlandi í brennidepli

Viðskiptaráð hélt opinn fund á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl sl. um stöðu og horfur í atvinnulífi á Austurlandi. Ragnar Sigurður Kristjánsson, …
15. apríl 2026

Handan þokunnar - fundur á Egilsstöðum

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00. Auður Vala Gunnarsdóttir hjá Blábjörg, Hlöðver Hlöðversson …
1. apríl 2026

Myndband: ETS-kerfið

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fjallar hér um hvernig ETS-kerfið virkar og hvaða áhrif það mun hafa á samkeppnisstöðu …
16. mars 2026

Samþykktum endurgreiðslum hjá Rannís fækkar verulega milli ára

Rannís hefur ekki samþykkt færri umsóknir um endurgreiðslur til fyrirtækja vegna rannsókna og þróunar í áratug en á árinu 2024 auk þess sem hlutfall …
11. mars 2026

Viðskiptaráð styrkir þrjá afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Arnar Ágúst Kristjánsson, Hildur Þóra Hákonardóttir og Jón Valur Björnsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.500.000 kr.
3. mars 2026