Viðskiptaráð Íslands

Við erum öll á sama báti

Atvinnulífið hvetur fólk og fyrirtæki til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að samkomubann vegna COVID-19 skili árangri. Með góðri samvinnu mun okkur takast að lágmarka neikvæð áhrif, tryggja heilsu fólks og verja störf og rekstur fyrirtækja.

Þetta kemur fram í sameiginlegri auglýsingu Samtak atvinnulífsins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka verslunar og þjónustu og Viðskiptaráðs Íslands.

Svona virkar samkomubannið
Tryggja skal að aldrei séu 100 manns eða fleiri í sama rými á sama tíma. Það gildir ekki aðeins um skipulagða viðburði heldur einnig um vinnustaði, veitingastaði, mötuneyti, kaffihús, skemmtistaði, verslanir, sundlaugar, líkamsræktarstöðvar og söfn. Þetta á einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilegra starfsemi að alþjóðflugvöllum, alþjóðahöfnum, flugvélum og skipum undanskildum.

Við fámennari mannamót skulu ávallt að vera a.m.k. tveir metrar milli fólks og skal vera gott aðgengi að handþvotti og handspritti. Þá þarf að skipuleggja rými á vinnustöðum þannig að minnst tveir metrar séu á milli fólks, eins og mögulegt er.

Samkomubannið gildir í fjórar vikur til miðnættis aðfaranóttar mánudagsins 13. apríl.

Vinnum saman
Ríkisstjórnin, Seðlabankinn, atvinnulífið og launafólk þurfa að róa að því öllum árum að minnka bæði skammtímaáhrif af COVID-19 á fólk og fyrirtæki og langtímaáhrif á þjóðarbúið.

Við munum vinna náið með aðildarfyrirtækjum okkar og stjórnvöldum og markmiðið er að þessar mikilvægu aðgerðir gangi snurðulaust fyrir sig.

Nánari upplýsingar á www.covid.is

#COVID-19-vaktin

Tengt efni

COVID-19 vaktin

Hér mun Viðskiptaráð uppfæra stöðuna reglulega og veita gagnlegar upplýsingar til handa viðskiptalífinu.
26. mars 2020

Vopn gegn sameiginlegum óvini

Viðskiptaráð Íslands hefur tekið saman mögulegar aðgerðir og það sem þarf að huga að til að takmarka útbreiðslu og neikvæð áhrif COVID-19. Mikilvægt …
10. mars 2020

Viðskiptaráð fordæmir hlutabótasvik

Viðskiptaráð Íslands fordæmir misnotkun á hlutabótaúrræðum stjórnvalda sem vinnur gegn markmiðum þeirra og brýtur gegn öllum viðteknum venjum góðra …
31. mars 2020

Hikum ekki

Í núverandi ástandi er ómögulegt að vita fyrir víst hvaða ákvarðanir munu reynast best, en líklega er hið fornkveðna aldrei sannara en nú; að hik …
20. mars 2020

Katrín Jakobsdóttir á föstudagsfundi Viðskiptaráðs

Félagar Viðskiptaráðs fá reglulega uppfærslu á efnahagsstöðunni á tímum COVID-19 á föstudagsfundum ráðsins.
21. apríl 2020