Viðskiptaráð Íslands

Lummuleg á­form heil­brigðis­ráð­herra

„Sé markmið heilbrigðisráðherra að draga úr neyslu á nikótínvörum ætti hann að líta til þess árangurs sem náðst hefur í að draga úr tóbaksneyslu hér á landi. Sá árangur náðist einna helst með aukinni fræðslu, þar sem áhersla var lögð á að upplýsa einstaklinga um skaðleg áhrif tóbaks, en nikótínvörur og nikótínlyf eiga einnig stóran þátt í þeim árangri.“

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs.

Nú liggja fyrir áform frá heilbrigðisráðherra sem munu skerða verulega valfrelsi neytenda þegar kemur að nikótínvörum. Nái þau fram að ganga verða nikótín- og tóbaksvörur færðar undir eina heildarlöggjöf um varnir gegn tóbaks- og nikótínvörum. Samkvæmt áformunum mun sú heildarlöggjöf leiða til þess að takmarkanir verða settar á bragðefni sem talin eru höfða til barna auk þess sem netsala með nikótínvörur verður bönnuð. Áform ráðherra hefðu neikvæð áhrif á valfrelsi fjölda neytenda á sama tíma og óljóst er hvort þau nái því markmiði að takmarka neyslu.

Nikótín og tóbak sitthvor hluturinn

Einkennilegt er að fella nikótínvörur, sem ekki innihalda tóbak, undir sömu löggjöf og hefðbundnar tóbaksvörur. Nikótínvörur eru skaðminni en tóbaksvörur og fjöldi fólks hefur nýtt sér þær til að hætta að reykja eða neyta annara tegunda tóbaks.

Löggjöfin ætti að endurspegla að nikótínvörur eru skaðminni valkostur, en ekki leggja þær að jöfnu við tóbaksvörur. Þannig er tryggt að til staðar sé hvati fyrir einstaklinga að kjósa skaðminni valkost en hefðbundna tóbaksvöru. Núverandi áform taka aftur móti ekki mið af þessum sjónarmiðum.

Hvaða bragðefni höfða til barna?

Óljóst er af áformum ráðherra hvaða bragðefni eru talin höfða sérstaklega til barna og hvergi er það skýrt nánar. Neytendur nikótínvara eru því í óvissu um hvort fyrirhugaðar takmarkanir nái til þeirra vara sem þeir kjósa að neyta eða ekki.

Af áformunum virðist einnig sem nikótínlyf megi áfram vera seld með bragðefnum sem ráðherra gæti talið að höfði til barna. Samkvæmt áformunum gæti nikótíntyggjó með ávaxtabragði þannig áfram hlotið náð í augum ráðherra en nikótínpúði með sama bragði verið bannaður.

Þá verður það að teljast sérstakt að ráðherrann telji nauðsynlegt að takmarka sérstaklega aðgengi að bragðefnum sem hann telur höfða til barna, í ljósi þess að sala á nikótínvörum til barna er nú þegar ólögleg.

Netverslunarbann óráðlegt

Loks má finna í áformunum bann við netverslun með nikótínvörur. Slíkt bann fæli í sér umtalsvert inngrip í verslunarfrelsi þar sem að um væri að ræða bann á lögmæt viðskipti með löglegar vörur.

Bannið myndi þó ekki ná til netverslana utan Íslands, svo neytendur á Íslandi gætu enn keypt nikótínvörur með löglegum brögðum frá erlendum netverslunum og fengið afhentar á Íslandi. Reynslan af netsölu með áfengi sýnir að séríslenskt bann þýðir einfaldlega að erlendir netsöluaðilar taka yfir slíka þjónustu á kostnað þeirra innlendu. Netverslunarbannið væri því fyrst og fremst til þess fallið að veikja samkeppnisstöðu innlendra söluaðila gagnvart þeim erlendu og takmarka frelsi einstaklinga til að eiga í viðskiptum með þeim hætti sem þeir kjósa.

Notum aðferðir sem virka

Sé markmið heilbrigðisráðherra að draga úr neyslu á nikótínvörum ætti hann að líta til þess árangurs sem náðst hefur í að draga úr tóbaksneyslu hér á landi. Sá árangur náðist einna helst með aukinni fræðslu, þar sem áhersla var lögð á að upplýsa einstaklinga um skaðleg áhrif tóbaks, en nikótínvörur og nikótínlyf eiga einnig stóran þátt í þeim árangri.

Undirritaður hvetur heilbrigðisráðherra til að taka áformin til endurskoðunar og hverfa af braut boða og banna, sérstaklega þar sem um er að ræða tilviljanakennd og marklaus bönn. Fræðsla og upplýsing eru líklegri til að stuðla að auknu heilbrigði þjóðarinnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi, 10. júlí 2025

Tengt efni

Skyldubundið samræmt námsmat til bóta

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um drög að reglugerð um samræmt námsmat í grunnskólum. Ráðið fagnar auknu gagnsæi og birtingu samanburðarhæfra …
3. febrúar 2026

Hlutverk hins opinbera þarfnist stöðugrar endurskoðunar

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar stöðumat og valkosti fyrir stefnu um opinbera þjónustu. Ráðið telur að stöðug endurskoðun þurfi að eiga sér stað …
19. nóvember 2025

Færa á námsmannaleyfi til samræmis við Norðurlönd

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi sem felur í sér einföldun á afgreiðslu atvinnuleyfa og breytingar á reglum um dvalarleyfi …
5. nóvember 2025

Steinar í götu samrunaaðila

„Virk samkeppni er forsenda framleiðni- og hagvaxtar, en reglur sem eiga að tryggja hana mega ekki verða of íþyngjandi. Samkeppnislög þurfa að stuðla …
23. október 2025

Aðgerðir gegn nikótíni hamli samkeppni og skerði valfrelsi

Bann við netsölu, takmörkun bragðefna og einsleitar umbúðir er meðal tillagna í frumvarpsdrögum um setningu heildarlöggjafar um nikótín- og …
20. ágúst 2025

Nikótín sett undir sama hatt og tóbak

Viðskiptaráð gagnrýnir fyrirhuguð áform um aukna íhlutun í sölu og framleiðslu nikótínvara. Að mati ráðsins eru tillögurnar til þess fallnar að skerða …
3. júlí 2025