Viðskiptaráð Íslands

Tíu ára kyrrstaða í orkumálum

„Kyrrstaða síðustu tíu ára er ekki náttúrulögmál. Hún er afleiðing af kerfi þar sem það tekur ár og áratugi að koma nýjum virkjunum í gagnið.“

Raforkuframleiðsla á Íslandi var sú sama árið 2025 og árið 2015, 18,8 teravattstundir. Á þessum tíu árum fjölgaði landsmönnum um fimmtung og framleiðsla á mann dróst því saman. Í úttektinni Kraftur í kortunum, sem Viðskiptaráð birti í síðustu viku, er spurt hvers vegna.

Ástæðan er ekki skortur á virkjunarkostum. Í rammaáætlun hafa verið kortlagðir kostir sem gætu margfaldað raforkuframleiðslu landsins. Vandinn er kerfið sem á að afgreiða þá. Frá því að lög um rammaáætlun voru sett árið 2011 hafa aðeins tvær nýjar virkjanir risið, auk vindorkuversins Vaðölduvers sem hóf framleiðslu á árinu.

Ferli sem tekur áratugi

Áður en hægt er að sækja um leyfi fyrir virkjun þarf kosturinn að komast í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Faghópar meta hann og verkefnisstjórn gerir tillögu að flokkun. Ráðherra getur breytt tillögunni áður en hann leggur hana fyrir Alþingi, sem getur einnig breytt henni. Auk afgreiðslu Alþingis þarf síðan umhverfismat, skipulag og leyfisveitingar, þar sem kæruleiðir eru margar.

Landsvirkjun áætlar að ferlið frá hugmynd að virkjun taki í besta falli tólf ár. Hvammsvirkjun kom fyrst til mats árið 1999 og verður gangsett 32 árum síðar. Það tók sextán ár að flokka hana í orkunýtingarflokk og leyfi vegna hennar hafa þrisvar verið felld úr gildi. Vindorkuver í Garpsdal kom til mats vorið 2020. Síðan hefur verkefnisstjórn lagt til orkunýtingarflokk, ný verkefnisstjórn lagt til biðflokk og ráðherra orkunýtingarflokk. Kosturinn á eftir að fara í gegnum þingið og er því enn óflokkaður.

Viðskiptaráð leggur til að lög um rammaáætlun verði afnumin og virkjanir fari í sama almenna leyfisferli og aðrar framkvæmdir, með einni kæruleið. Flutningskerfið verði byggt upp á undan eftirspurn og vindorka á þegar röskuðum svæðum fái forgang. Loks setji stjórnvöld sér markmið um að raforkuframleiðsla verði 43 teravattstundir árið 2040, rúmlega tvöfalt meiri en nú.

Kortið sýnir alla metna kosti

Úttektin hefur vakið hörð viðbrögð, meðal annars í grein á Vísi eftir Andra Snæ Magnason, rithöfund. Gagnrýnin snýst einkum um kort ráðsins af virkjunarkostum, friðuð svæði, umfang markmiðsins og hver eigi að ráða hvar er virkjað. Öllu þessu má svara.

Á kortinu í úttekt Viðskiptaráðs eru sýndir allir kostir sem komið hafa til mats í rammaáætlun, ásamt stöðu hvers og eins. Þar eru allar útfærslur taldar, líka þær sem útiloka hver aðra, og það kemur fram á kortinu. Í úttektinni segir berum orðum að kostirnir séu ekki allir nýtanlegir samtímis.

Samanlögð orkugeta þeirra er yfir 80 teravattstundir á ári. Séu allar tvítalningar dregnar frá má áætla orkugetuna um 70–75 teravattstundir, eftir því hvernig talið er, en opinber tala er ekki til. Tvöföldun raforkuframleiðslu kallar á um fjórðung þeirrar orkugetu. Kostirnir sem Alþingi hefur þegar sett í orkunýtingar- og biðflokk nægja nær einir til þess.

Enginn þeirra er við Geysi eða Dettifoss, í Öskju, Kverkfjöllum eða Kerlingarfjöllum. Þessir staðir birtast á kortinu vegna þess að þar hafa virkjunarkostir verið metnir, ekki vegna þess að Viðskiptaráð vilji virkja þá. Þjóðgarðar og friðlýst svæði yrðu áfram vernduð samkvæmt lögum og framkvæmdir þyrftu áfram að lúta lögum um náttúruvernd og umhverfismat.

Andri kallar markmiðið sturlað. Það er vissulega metnaðarfullt, en það er í samræmi við hæstu sviðsmyndina í grænbók stjórnvalda frá 2022, þar sem gert er ráð fyrir fullum orkuskiptum og aukinni notkun stórnotenda. Markmiðið er því ekki úr lausu lofti gripið, heldur byggir á sviðsmynd sem stjórnvöld hafa sjálf lagt fram.

Alþingi setji leikreglurnar

Loks gagnrýnir Andri að samkvæmt tillögu Viðskiptaráðs færu aðeins sérstaklega umfangsmiklar virkjanir, til dæmis yfir 600 megavöttum, fyrir Alþingi, þegar enginn ónýttur kostur á kortinu nær þeirri stærð.

Það er einmitt hugsunin. Kárahnjúkavirkjun hefði samkvæmt tillögunni þurft samþykki Alþingis, en almennt á það ekki að vera hlutverk þingsins að taka ákvarðanir um einstakar virkjanir, frekar en aðrar umfangsmiklar atvinnu- og innviðaframkvæmdir. Alþingi á að setja leikreglurnar um náttúruvernd, umhverfismat og skipulag, en ákvarðanir um einstakar framkvæmdir eiga að byggjast á þeim.

Virkjanir eiga síðan að fara í umhverfismat og í gegnum skipulagsferli sveitarfélaga eins og aðrar framkvæmdir, þar sem almenningur og heimafólk geti gert athugasemdir. Náttúruvernd og lýðræðisleg aðkoma hverfi ekki þótt Alþingi hætti að samþykkja einstaka virkjunarkosti.

Kyrrstaða er ekki náttúrulögmál

Samhengið milli orkunotkunar og lífskjara er eitt það skýrasta sem fyrirfinnst. Ekkert ríki með góð lífskjör býr við litla orkunotkun. Ísland hefur lengi verið í sterkri stöðu, en við erum farin að dragast aftur úr sjálfum okkur.

Það þarf ekki að velja á milli þess að vernda verðmæta náttúru og nýta orkuauðlindir landsins. Hvort tveggja er hægt með skýrum leikreglum, öflugu umhverfismati og fyrirsjáanlegu leyfisferli.

Kyrrstaða síðustu tíu ára er ekki náttúrulögmál. Hún er afleiðing af kerfi þar sem það tekur ár og áratugi að koma nýjum virkjunum í gagnið. Það er tímabært að breyta því.

Greinin birtist fyrst á Vísi.

Tengt efni

Kort af virkjunarkostum á Íslandi

Kraftur í kortunum: leiðin að tvöföldun raforkuframleiðslu

Kortlagðir virkjunarkostir gætu margfaldað raforkuframleiðslu Íslands, en hún hefur staðið í stað frá 2017. Rammaáætlun, margar kæruleiðir og veikt …
29. október 2026

Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá …
31. mars 2026

Rammaáætlun hindrun í nauðsynlegri orkuöflun

Rammaáætlun hefur hvorki leitt til aukins gagnsæis né sáttar í samfélaginu um orkunýtingu. Þvert á móti hefur kerfið skapað óvissu, tafir og hindranir …
25. nóvember 2025

Bagalegt að engin vindorkuverkefni séu flokkuð í nýtingarflokk

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar tillögu verkefnisstjórnar 5. áfanga ramma­áætlunar að flokkun tíu vindorkuverkefna. Ráðið lýsir áhyggjum af því …
28. apríl 2025

Rammaáætlun reynst dragbítur á framgang nauðsynlegra orkuskipta

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Frumvarpið felur í sér nokkrar úrbætur …
24. apríl 2025

10 vindorkukostir: Allir orkukostir í biðflokk

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög verkefnastjórnar rammaáætlunar að flokkun tíu vindorkukosta. Ráðið ítrekar enn og aftur þá afstöðu sína að …
13. janúar 2025