Viðskiptaráð Íslands

Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá átt. Ljóst er að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku hefur á undanförnum árum tafist verulega og að núverandi lagaumhverfi og leyfisferlar hafa í mörgum tilvikum reynst þungir og ófyrirsjáanlegir.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar áform um breytingar á raforkulögum vegna uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður þau áform sem kynnt eru. Ljóst er að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku hefur á undanförnum árum tafist verulega og að núverandi lagaumhverfi og leyfisferlar hafa í mörgum tilvikum reynst þungir og ófyrirsjáanlegir. Slíkt hefur haft áhrif á afhendingaröryggi raforku, tafið orkuskipti og dregið úr möguleikum til verðmætasköpunar. Því er brýnt að ráðist sé í aðgerðir sem stuðla að skilvirkari stjórnsýslu, skýrari málsmeðferð og styttri afgreiðslutíma.

Sérstaklega er jákvætt að leitast sé við að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæðir eða lögmæti ákvarðana leiði ekki sjálfkrafa til stöðvunar framkvæmda, enda getur slíkt haft í för með sér verulegar tafir á verkefnum sem eru í almannaþágu og haft víðtæk samfélagsleg og þjóðhagsleg áhrif. Með því að auka fyrirsjáanleika og draga úr líkum á langvarandi stöðvun framkvæmda má skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu innviða sem eru nauðsynlegir fyrir áframhaldandi þróun raforkukerfisins.

Jafnframt er það til bóta að horft sé til samræmingar heimilda sérleyfisfyrirtækja við þær reglur sem gilda á öðrum sviðum, svo sem í fjarskiptalögum. Með því að lögfesta þolskyldu landeigenda, að uppfylltum skýrum skilyrðum, má draga úr óvissu og stuðla að því að nauðsynleg raforkuuppbygging komist hraðar til framkvæmda.

Áformin snerta beint vernd eignarréttar samkvæmt 72. gr. stjórnarskrár og því er lykilatriði að tryggja framkvæmdaraðilar vandi til undirbúnings, rannsaki valkosti og gæti að meðalhófi áður en lögð er fram krafa um eignarnám vegna virkjanaframkvæmda.

Samhliða framangreindum áformum er tilefni til að endurskoða umfang rýmkaðrar aðildar að málshöfðun samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála með það fyrir augum að slík heimild sé takmörkuð við aðila máls eða þá sem hafa nægilega beina og verulega hagsmuni af úrlausn þess.

Viðskiptaráð áréttar að bein tengsl eru milli orkuframleiðslu og landsframleiðslu og lífsgæði þjóða því nátengd við getu landa til að framleiða orku. Mikilvægt er því að stjórnvöld leiti allra leiða til að auka skilvirkni í áframhaldandi orkuframleiðslu svo framleiðslugeta og samkeppnishæfni íslensks samfélags verði ekki skert.

Að þessu virtu styður Viðskiptaráð að áformin nái fram að ganga, enda verði framangreindra sjónarmiða gætt við frekari útfærslu og lagasetningu.

Tengt efni

Forðast þarf óvissu í stuðningi við nýsköpun

Viðskiptaráð fagnar markmiðum frumvarps um breytingar á stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki en varar við íþyngjandi skilyrðum og skorti á …
30. janúar 2026

Rammaáætlun hindrun í nauðsynlegri orkuöflun

Rammaáætlun hefur hvorki leitt til aukins gagnsæis né sáttar í samfélaginu um orkunýtingu. Þvert á móti hefur kerfið skapað óvissu, tafir og hindranir …
25. nóvember 2025

Viðhalda þarf öflugu og stöðugu hvatakerfi fyrir nýsköpun

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til þess að viðhalda stöðugu og öflugu hvatakerfi fyrir nýsköpun. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins um drög að …
13. nóvember 2025

Nýsköpun krefst traustra leikreglna

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Ráðið fagnar frumvarpinu sem …
10. nóvember 2025

Koma þarf í veg fyrir tafir á orkuöflun og innviðauppbyggingu

Viðskiptaráð hefur veitt umsögn um breytingartillögu um virkjunarleyfi til bráðabirgða. Ráðið styður markmið hennar en telur jafnframt nauðsynlegt að …
1. apríl 2025

Skref í átt að skilvirkari leyfisveitingu í umhverfis- og orkumálum

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og …
25. apríl 2025