Viðskiptaráð Íslands

Gerð þjóðhagsáætlana grundvöllur bættra lífskjara

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna þingsályktunar um undirbúning að gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma. Það er afstaða ráðsins að grundvöllur bættra lífskjara felist í langtímastefnu þar sem áhersla er lögð á bætta samkeppnishæfni og þar með aðstæður til verðmætasköpunar.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Viðskiptaráð telur að Íslendingar hafi átt erfitt með að einblína á heildarmyndina, langtímamarkmið og þau tækifæri sem kerfisbreytingum fylgja.
  • Vitnað er í skýrslu McKinsey sem ráðið átti frumkvæði að sumarið 2012. Skýrslan hefur gert fjölmörgum hagsmunaaðilum kleift að ræða framtíðaráskoranir og tækifæri íslenska hagkerfisins með markvissum hætti.
  • Viðskiptaráð telur þjóðhagsáætlanir til lengri tíma geta verið grundvöll áframhaldandi vinnu á sama grundvelli og stutt þannig við aukna langtímastefnumörkun í íslensku samfélagi. Ráðið telur að með slíkum áætlunum munu liggja fyrir betri gögn fyrir mikilvægar ákvarðanatökur ásamt því að þessi kjarni stefnumótunar kemur í veg fyrir að tíma og fjármunum sé sóað í verkefni sem ekki skila verðmætum.

Tengt efni

Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029. Viðskiptaráð telur þörf á frekara aðhaldi í áætlunni, ganga …
6. maí 2024

Gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna þingsályktunar um undirbúning að gerð þjóðhagsáætlana til langs …
20. maí 2015

Sköpum umgjörð til athafna

Það hefur ávallt verið trú þeirra sem að Viðskiptaráði standa að kraftmikið atvinnulíf sé skilvirkasta leiðin til að bæta lífskjör og standa undir …
8. júní 2011

Mikilvægir mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um mælikvarða um hagsæld og lífsgæði. Um alllangt skeið hefur ráðið talað fyrir því að stefna stjórnvalda þurfi í …
25. október 2019

Virkniúrræði fyrir atvinnuleitendur

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til velferðarnefndar Alþingis vegna tillögu til þingsályktunar um eflingu virkniúrræða fyrir atvinnuleitendur. …
19. mars 2015

Þingsályktunartillaga um mótun viðskiptastefnu Íslands

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um mótun viðskiptastefnu Íslands …
6. nóvember 2013