Viðskiptaráð Íslands

Breyting sem bitnar helst á fjölmiðlum sem veita stjórnvöldum aðhald

Viðskiptaráð lýsir áhyggjum af auknum umsvifum RÚV og minnkandi sjálfstæði einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins um frumvarp sem felur í sér breytingar á opinberu styrkjakerfi fjölmiðla. Ráðið gagnrýnir styrkjakerfið sem viðheldur ósanngjörnu samkeppnisumhverfi þar sem RÚV nýtur bæði ríkisframlaga og auglýsingatekna, ólíkt öðrum Norðurlöndum. Lækkun hámarkshlutfalls styrkja bitnar helst á stærri miðlum sem veita stjórnvöldum aðhald.

Viðskiptaráð lýsir yfir áhyggjum af minnkandi umsvifum einkarekinna fjölmiðla á Íslandi á sama tíma og vægi hins opinbera á fjölmiðlamarkaði hefur aukist. [1] Ráðið hefur áður skilað inn umsögn um málið á fyrri stigum og vísar til þess eftir því sem við á. [2]

Ráðið leggur áherslu á að afnema opinbert styrkjakerfi til fjölmiðla í stað þess að gera frjálsa fjölmiðla að styrkþegum stjórnvalda. Þess í stað ætti Alþingi að lagfæra skekkjur sem veikja stöðu einkarekinna fjölmiðla. Veigamesta skekkjan er Ríkis­útvarpið (RÚV), sem nýtur bæði opinberra framlaga og keppir við einkaaðila um sölu auglýsinga. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á Norður­löndunum og gerir það að verkum að frjálsir fjölmiðlar standa höllum fæti hérlendis.

Lækkun hámarkshlutfalls bitnar á þeim sem veita mesta aðhaldið

Með frumvarpinu er lagt til að hámarkshlutfall fjárveitinga til verkefna lækki úr 25% niður í 22%. Þessi breyting mun bitna á stærri fjölmiðlum, sem helst geta veitt RÚV samkeppni og eru í sterkustu stöðunni til að veita stjórnvöldum aðhald. Starfandi hjá einkareknum fjölmiðlum hefur fækkað verulega á undanförnum árum og þessi breyting á styrkjakerfinu er síst til þess fallin að snúa þeirri þróun við (mynd 1).

Viðskiptaráð telur nauðsynlegt að draga úr umsvifum RÚV á fjölmiðlamarkaði. Hvergi á Norðurlöndunum er markaðshlutdeild ríkismiðilsins jafn mikil og hér á landi, en hlutdeild RÚV í heildartekjum á fjölmiðlamarkaði er 27%, samanborið við 10% að meðaltali Norðurlöndunum. Þá er RÚV eini ríkismiðill Norðurlanda sem þiggur bæði opinber framlög og hefur heimild til auglýsingasölu (mynd 2).

Styrkjum til einkarekinna fjölmiðla var komið á fót til að vega upp á móti þessari skekkju. Árið 2023 námu styrkir til einkarekinna fjölmiðla 470 milljónum króna sem dreifðust á 25 rekstraraðila, en tveir miðlar hlutu hæsta mögulega styrk og fengu 107 milljónir króna hvor í sinn hlut. Á sama tíma hlaut RÚV tólffalt hærra framlag en allir einkareknir fjölmiðlar samanlagt (mynd 3). Þetta sýnir að opinberir styrkir duga skammt til að jafna aðstöðumuninn og ráðast ekki að rót vandans, en eru frekar plástur á vandamál sem stjórnvöld hafa sjálf skapað með veru ríkismiðilsins á fjölmiðlamarkaði og mikilli meðgjöf með miðlinum.

Styrkjakerfið samræmist illa lýðræðissjónarmiðum þar sem frjálsir fjölmiðlar gegna mikilvægu aðhaldshlutverki gagnvart ríkjandi stjórnvöldum. Það að gera þá fjár­hagslega háða hinu opinbera veikir þetta hlutverk og dregur þannig úr óhæði þeirra gagnvart ríkjandi stjórnvöldum. Í því samhengi er óhjákvæmilegt að benda á að frumvarpið kemur í beinu framhaldi af ummælum stjórnarþingmanns­­­ um að tímabært sé að endurskoða styrki til einstakra fjölmiðla. Ummælin lét þingmaðurinn falla í samhengi við umfjöllun sem hann var ósáttur við. [3]

Ráðumst að rót vandans

Viðskiptaráð telur löngu tímabært að ráðast að rót vandans og búa einkareknum fjölmiðlum alþjóðlega samkeppnishæft rekstrarumhverfi. Það mætti m.a. gera með því að taka RÚV af auglýsingamarkaði og jafna stöðu innlendra og erlenda miðla hvað varðar takmarkanir á auglýsingum og kvaðir.

Styrkjakerfið er viðbragð sem um leið viðheldur ósjálfbæru rekstrarumhverfi fyrir einkarekna fjölmiðla án þess að raunverulega takast á við rót vandans. Viðskiptaráð Íslands hvetur því til þess að stjórnvöld horfi til langtímasjónarmiða og leggi áherslu á jafnræði í samkeppni á fjölmiðlamarkaði.

Umsögnina í heild sinni má lesa hér.

Tilvísanir

1 Sjá úttekt Viðskiptaráðs (mars 2025): „Afsakið hlé: umhverfi fjölmiðla á Íslandi”. Slóð: https://vi.is/skodanir/afsakid-hle

2 Sjá umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um fjölmiðla (mars 2025): https://vi.is/umsagnir/opinbert-styrkjakerfi-ekki-lausnin

3 Vísir.is (5. febrúar 2025): „Vill endur­skoða styrki til Morgun­blaðsins eftir um­fjöllun um Flokk fólksins.“ Slóð: https://www.visir.is/g/20252684641d/vill-endur-skoda-styrki-til-morgun-bladsins-eftir-um-fjollun-um-flokk-folksins

Tengt efni

Pakkaleikur á fjöl­miðla­markaði

„Einu lausnirnar sem er að finna í fjölmiðlapakkanum er meira af því sama og hefur verið reynt á fjölmiðlamarkaði undanfarin ár, þ.e. auknar opinberar …
7. janúar 2026

Auka ætti frelsi í ráðstöfun útvarpsgjalds

Viðskiptaráðs styður að neytendum verði veitt aukið frelsi til að ráðstafa útvarpsgjaldinu með þeim hætti sem þeir kjósa. Ganga mætti enn lengra og …
8. desember 2025

Menningarframlag óskilvirkur skattur sem nær ekki markmiðum sínum

Viðskiptaráð varar við því að skattlagning á streymisþjónustu gæti haft neikvæð áhrif á samkeppni og aukið kostnað neytenda. Þess í stað telur ráðið …
27. október 2025

Staða RÚV einsdæmi á Norðurlöndum

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur um árabil einkennst af verulegum skekkjum, þar sem Ríkisútvarpið nýtur bæði opinberra framlaga …
26. september 2025

Grefur undan hvata til þátttöku á vinnumarkaði

Tenging almannatrygginga við launavísitölu felur í sér verulega og óskynsamlega útgjaldaaukningu. Viðskiptaráð leggst gegn breytingunni enda mun hún …
30. október 2025

Opinbert styrkjakerfi ekki lausnin

Viðskiptaráð hefur tekið til skoðunar frumvarp sem felur í sér breytingar á opinberu styrkjakerfi fjölmiðla. Ráðið varar við að slíkt kerfi viðhaldi …
7. mars 2025