Viðskiptaráð leggst gegn frumvarpsdrögum um að takmarka hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána við 25 ár. Greiningar Seðlabankans benda ekki til þess að verðtrygging dragi úr virkni peningastefnunnar og ákvarðanir um takmarkanir á lánveitingum ættu að vera á forræði bankans. Þá myndi breytingin ýta hluta fólks út af eignamarkaði á sama tíma og kólnun ríkir á fasteignamarkaði.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda (hámarkslánstími verðtryggðra lána), mál nr. S-230/2026 í samráðsgátt. Með frumvarpsdrögunum er lagt til að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána til neytenda verði takmarkaður við 25 ár. Jafnframt er lagt til að lánveitanda verði óheimilt að haga skilmálum fasteignaláns til neytenda, verðtryggðs eða óverðtryggðs, þannig að endurgreiðsla eftirstöðva sé lægri en á verðtryggðu jafngreiðsluláni til 25 ára, leiði það af skilmálunum að eftirstöðvar fari hækkandi.
Viðskiptaráð Íslands leggst gegn frumvarpsdrögunum og telur þau fela í sér verulega takmörkun á samningsfrelsi lántaka og lánveitenda án þess að sýnt sé fram á að ávinningurinn réttlæti hana.
Miðlun peningastefnunnar
Eitt af meginmarkmiðum frumvarpsins er að ýta undir skilvirkari miðlun peningastefnunnar. Ráðið tekur undir mikilvægi þess að miðlun peningastefnunnar sé skilvirk en dregur í efa að þessi tiltekna leið hafi það í för með sér, einkum í ljósi innlendra greininga sem Seðlabankinn hefur ráðist í.
Í Peningamálum 2023/2 kannaði Seðlabankinn sérstaklega áhrif lánasamsetningar heimila á miðlun peningastefnunnar.[1] Niðurstöðurnar sýndu að stýrivaxtahækkanir leiddu vissulega til tilfærslu úr óverðtryggðum lánum í verðtryggð en engar vísbendingar var þar að finna um að sú tilfærsla hafi dregið úr áhrifum peningastefnunnar á eftirspurn heimila. Áhrif vaxtahækkunar á einkaneyslu reyndust nánast þau sömu árið 2012, þegar óverðtryggð lán voru ríflega 10% af lánastofni heimila, og árið 2021, þegar hlutfallið var komið í um 50%. Það átti jafnframt við þegar áhrif vaxtahækkana á einkaneyslu voru borin saman milli tímabila með ólíka lánasamsetningu og þegar kannað var hvort vaxtanæmi einkaneyslu breyttist með hlutdeild óverðtryggðra lána.
Þessar niðurstöður samræmast því mati sem varaseðlabankastjóri peningastefnu setti fram í grein árið 2025.[2] Þar komst hann að þeirri niðurstöðu að áhrif peningastefnunnar hér á landi væru sambærileg við áhrif hennar í Noregi og Svíþjóð, bæði að umfangi og tímatöfum, þrátt fyrir verðtrygginguna.
Þótt bent sé á takmarkanir greininga Seðlabankans í greinargerð frumvarpsdraganna er þar ekki lögð fram innlend greining sem styður gagnstæða niðurstöðu. Að mati ráðsins nægja erlendar rannsóknir á lánamörkuðum sem eru ólíkir þeim íslenska ekki til að réttlæta svo veigamikla takmörkun á samningsfrelsi án frekari skoðunar.
Á forræði Seðlabankans að tryggja fjármálastöðugleika
Viðskiptaráð telur lánveitendur best til þess fallna að meta áhættu af einstökum lánveitingum og haga lánskjörum í samræmi við hana. Þeir hafa enda þegar brugðist við breyttum aðstæðum. Líkt og rakið er í greinargerð frumvarpsdraganna hafa viðskiptabankar stytt hámarkslánstíma og sumir takmarkað verðtryggðar lánveitingar, meðal annars vegna misvægis verðtryggðra eigna og skulda.
Séu hins vegar málefnaleg rök fyrir opinberum takmörkunum á lánveitingum vegna fjármálastöðugleika telur ráðið að slíkar ákvarðanir eigi að vera á forræði Seðlabanka Íslands. Bankinn hefur þegar yfir að ráða stjórntækjum til að bregðast við breyttum aðstæðum og er við mat á greiðslubyrði verðtryggðra lána nú miðað við að hámarki 25 ára lánstíma. Með því að lögfesta hámarkslánstíma yrði þrengt að svigrúmi bankans til að haga takmörkunum í samræmi við aðstæður hverju sinni. Viðskiptaráð telur því ekki heppilegt að stjórnvöld fari inn á verksvið bankans með þeim hætti sem lagt er til í frumvarpsdrögunum.
Styður við séreignastefnuna
Löng verðtryggð lán hafa lengi gert fólki kleift að kaupa húsnæði sem ella væri fast á leigumarkaði. Lægri greiðslubyrði ræður þar miklu, ekki síst hjá ungu fólki og tekjulægri heimilum. Með því að þrengja að þessu úrræði er ákveðnum hópi í reynd ýtt út af eignamarkaði og inn á leigumarkað.
Verðtryggð lán sæta gjarnan gagnrýni þar sem höfuðstóllinn hækkar þrátt fyrir reglubundnar greiðslur. En eðli þeirra er með þeim hætti að verðbætur bætast við höfuðstól lánanna. Verðbætur eru einfaldlega leiðrétting á virði þeirra fjármuna sem lántaki fékk að láni, svo hann skilar sömu verðmætum til baka og hann fékk.
Verðbólga er greidd í báðum lánsformum. Í óverðtryggðum lánum er hún greidd jafnóðum með hærri nafnvöxtum á meðan í verðtryggðum lánum dreifist hún yfir lánstímann. Þar sem höfuðstóll verðtryggðra lána er greiddur hægar niður verða heildarvaxtagreiðslur að jafnaði hærri. Á móti vegur lægri greiðslubyrði í upphafi. Það á að vera lántakans og lánveitandans að vega þetta tvennt saman. Raunverulegur kostnaður lántakans felst í vöxtunum, en með vali á lánsformi ákveður hann hvenær verðbólgan er greidd.
Gildistaka og tímasetning
Verði frumvarpið lagt fram þrátt fyrir framangreint telur Viðskiptaráð gildistöku 1. mars 2027 of knappa, auk þess sem ekkert bráðabirgðaákvæði er um lánsumsóknir í vinnslu. Ráðið leggur til rýmri aðlögunartíma frá samþykkt laganna og að lánsumsóknir sem berast fyrir gildistöku verði afgreiddar samkvæmt eldri reglum.
Talsverð kólnun er á fasteignamarkaði þar sem sölutími fasteigna er að lengjast og hægt hefur verulega á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þá eru ýmsar kvaðir á uppbyggingaraðila með tilliti til skipulags, fjölda félagsíbúða sem eru seldar á undirverði og auknar eiginfjárkröfur á uppbyggingaraðila. Allt eru þetta þættir sem eru til þess fallnir að hækka íbúðaverð. Þá hefur nýlegur vaxtadómur nú þegar reist ákveðnar takmarkanir á lánamarkaði. Að framangreindu virtu telur Viðskiptaráð að takmarkanir á lánaframboði muni auka enn frekar á erfiðleika á húsnæðismarkaði.
Verðtryggingin er ekki orsök verðbólgu heldur leið til að bregðast við áhrifum hennar. Leiðin að minna vægi verðtryggingar liggur í auknum efnahagslegum stöðugleika sem gerir óverðtryggð lán að hagstæðari kosti, ekki í því að fækka valkostum heimila.
Með vísan til framangreinds leggur Viðskiptaráð til að fallið verði frá frumvarpsdrögunum.
1 Seðlabanki Íslands (2023). „Peningastefnan og val heimila á formi húsnæðislána“, rammagrein 3 í Peningamálum 2023/2, bls. 58–63. Slóð: https://sedlabanki.is/library/?itemid=4158df33-fa09-11ed-9baf-005056bccf91
2 Þórarinn G. Pétursson (2025). „Hvernig hefur peningastefnan áhrif á þjóðarbúskapinn?“ Slóð: https://sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/hvernig-hefur-peningastefnan-ahrif-a-thjodarbuskapinn