Viðskiptaráð leggst gegn því að orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega verði lögfestar og að sérstökum eingreiðslum verði haldið áfram. Eingreiðslurnar voru upphaflega tímabundin ráðstöfun vegna kórónuveirufaraldursins, en nýtt örorkukerfi hefur síðan tekið gildi. Ráðið hvetur stjórnvöld til að meta heildstætt samspil bóta, frítekjumarka og skerðinga svo tryggja megi skýran hvata til atvinnuþátttöku.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót), 205. mál á 158. löggjafarþingi. Frumvarpið kveður annars vegar á um lögfestingu á greiðslu orlofs- og desemberuppbóta til örorku-, hlutaörorku- og ellilífeyrisþega, auk sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega, og hins vegar um sérstaka eingreiðslu til sama hóps. Viðskiptaráð skilaði umsögn um drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda og vísar til hennar eftir því sem við á.[1]
Frumvarpinu er ætlað að tryggja skýrari lagastoð fyrir greiðslu orlofs- og desemberuppbóta sem hingað til hafa byggt á reglugerðarheimildum ráðherra. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að lögfesting greiðslu orlofs- og desemberuppbóta hafi aukinn kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð þar sem um sé að ræða framhald á óbreyttri framkvæmd. Þá er lagt til að bætt verði við ákvæði til bráðabirgða um 73.390 kr. eingreiðslu í desember 2026 sem skerðist um 3,3% af tekjum greiðsluþega umfram 1.200.000 kr. frítekjumark. Áætlað er að greiðslan nái til um 38.200 einstaklinga verði frumvarpið óbreytt að lögum, þar af er ætlað að um 19.200 einstaklingar njóti óskertra greiðslna. Kostnaður ríkissjóðs af eingreiðslunni er áætlaður tveir milljarðar króna.
Eingreiðslum ætlað að vera tímabundin ráðstöfun
Að mati ráðsins er vert að minna á að sérstakar eingreiðslur til þessa hóps voru upphaflega kynntar sem tímabundin ráðstöfun vegna kórónuveirufaraldursins. Þær hafa síðan verið endurteknar ár frá ári, meðal annars með vísan til þess að vinnu við heildarendurskoðun á örorkukerfinu væri ekki lokið.[2] Nýtt örorkukerfi tók hins vegar gildi 1. september 2025. Til viðbótar samþykkti Alþingi tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu fyrr á þessu ári.
Að því sögðu telur Viðskiptaráð æskilegt að skoða þörfina á þessari tilteknu breytingu í ljósi þeirra umfangsmiklu breytinga sem hafa verið gerðar á örorkukerfinu undanfarin ár. Við slíkt mat þarf ekki síst að líta til áhrifa kerfisins á hvata til atvinnuþátttöku.
Skakkir hvatar og samspil bóta við atvinnuþátttöku
Uppbygging núverandi örorkukerfis og samspil þess við skerðingar hefur skapað verulegar skekkjur og dregið úr hvata til atvinnuþátttöku. Nýlegar breytingar á örorkukerfinu hafa gert það að verkum að einstaklingar geta undir ákveðnum kringumstæðum haft hærri ráðstöfunartekjur innan almenna örorkubótakerfisins en á vinnumarkaði (mynd 1). Við slíkar aðstæður er hætt við að fólk festist innan kerfisins.

Grunnbætur í örorku- og hlutaörorkukerfinu skerðast nú þegar um 45% af eigin tekjum bótaþega umfram frítekjumörk, en í hlutaörorkukerfinu er samanlagt frítekjumark 368 þúsund krónur á mánuði. Það gerir einstaklingi með allt að 50% starfsgetu kleift að hafa umtalsverðar atvinnutekjur án skerðingar, en dæmi sýna að fyrir einstætt foreldri borgar sig ekki að hverfa af hlutaörorkubótum og út á vinnumarkað fyrr en mánaðarlaun fara yfir 1.047 þúsund krónur, en það er verulega yfir miðgildi launa sem stendur í 816 þúsund krónum.[3]
Samhliða hefur hlutfall öryrkja og endurhæfingarbótaþega af fólki á vinnualdri hækkað á undanförnum árum og er nú 10,4%, sem er næsthæsta hlutfall á Norðurlöndum.
Fjárhagsleg áhrif og langtímaskuldbindingar
Frumvarpið felur í sér þá grundvallarbreytingu að uppbæturnar verða varanlegur hluti almannatryggingakerfisins og þar með varanleg útgjaldaskuldbinding ríkissjóðs. Með því að binda einstakar greiðslur í lög sem sjálfstæð lagaskilyrði er dregið úr svigrúmi löggjafans til framtíðar til að ráðast í nauðsynlegar kerfisbreytingar eða sameiningar bótaliða. Slík breyting ætti enn fremur að byggja á mati á langtímaáhrifum á útgjöld ríkissjóðs, þarfagreiningu og samspili greiðslnanna við aðra þætti almannatryggingakerfisins.
Í ljósi þeirra kerfisbreytinga sem þegar hafa verið gerðar á örorkukerfinu telur Viðskiptaráð ekki ástæðu til að halda áfram sérstökum eingreiðslum til lífeyrisþega né að lögfesta orlofs- og desemberuppbætur. Ráðið telur jafnframt tilefni til að stjórnvöld leggi heildstætt mat á samspil bóta, frítekjumarka og skerðinga samhliða endurskoðun á hlutaörorkukerfinu með það að leiðarljósi að tryggja skýran fjárhagslegan hvata af þátttöku á vinnumarkaði. Þá þarf að tryggja að stuðningur beinist með markvissari hætti að þeim sem á honum þurfa að halda.
1 Umsögn Viðskiptaráðs við drögunum, mál nr. S-156/2026 (september 2026). Slóð: https://vi.is/umsagnir/varanleg-logfesting-serstakra-greidslna
2 Alþingi (2025). Minnisblað: Eingreiðslur til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega 2020–2025. Slóð: https://www.althingi.is/altext/erindi/157/157-953.pdf
3 Sjá úttekt Viðskiptaráðs (maí 2026): „Bætur í blindgötu: örorkukerfið og hvatar til vinnu“. Slóð: https://vi.is/skodanir/baetur-i-blindgotu