Bresk-íslenska verslunarráðið stendur fyrir siglingu á Thames ánni í Lundúnum þann 15. júní nk.
Siglingin verður með svipuðu sniði og hin vinsæla sigling í september 2003. Farið verður frá Westminster Pier klukkan 19:00 og komið til baka klukkan 22:00. Verð fyrir meðlimi BRÍS er £10 og £15 fyrir aðra. Innifalið er siglingin, létt hlaðborð og hálf vínflaska á mann.
Skráning fer fram hjá erla@vi.is